Sunday, May 27, 2007

Litli grallarinn hún Elísabet

Hún Elísabet mín á eftir að koma mér í vandræði einhvern daginn. Í dag tók ég stelpurnar með mér að kaupa tösku fyrir ferðalagið okkar til Íslands í sumar. Þegar ég var búin að skoða töskurnar í búðinni og búin að velja eina sem Elísabet ákvað að draga að kassanum þá sá ég að hún var að setja e-ð ofan í töskuna. Þegar ég kem nær þá er hún að setja alls konar ferðadót þar ofan í, eins og sápuhulstur, tannburstahulstur o.s.frv. Ég reyndi nú að benda henni á við yrðum að borga þetta áður en það færi ofan í töskuna. Mjög erfitt að fara ekki að hlæja þegar hún gerir svona hluti. Næst var svo haldið í næstu búð að kaupa ferða DVD spilara, þar sem að gamli okkar gaf sig fyrr í vetur eftir að hafa spilað fyrir okkur grimmt í næstum 4 ár. Í röðinni við kassann þá sér Elísabet einhvern kisu tölvuleik sem hún fór að skoða. Þegar kemur svo að mér í röðinni þá fer ég að kassanum og legg töskuna mína á borðið ásamt því sem ég ætla að kaupa. Ég opna svo töskuna til að ná í veskið mitt og viti menn þar blasir við mér kisuleikurinn sem mín hafði verið að skoða. Hún hafði þá bara stungið honum þar í því hún vissi ekki hvað annað hún ætti að gera við hann, ekki gat hún lagt hann á gólfið. Ég tók hann mjög vandræðaleg upp úr töskunni, en þakkaði bara fyrir hljóði að hafa ekki labbað út með hann, því þá hefði þjófavarnarkerfið í búðinni farið að glymja.

Mjög skemmtileg heimsókn

Hún Kristín vinkona mín og Einar maðurinn hennar komu í heimsókn til okkar um síðustu helgi. Meiriháttar gaman að fá þau hingað. Þau voru á ráðstefnu uppi í San Francisco og höfðu smá tíma til að kíkja suður í flóann til okkar. Gummi tók sér frí hálfan föstudaginn, svo þegar Kristín og Einar komu til okkar þá fórum við með þau í ekta amerískan brunch á mjög skemmtilegum stað í bænum okkar, kallast Western Kitchen. Ekki kannski staður sem maður vill fara á á hverjum degi því kaloríumagnið þarna er aðeins of mikið, samt ótrúlega gott. Næst náðum við í stelpurnar okkar og keyrðum yfir fjöllin til Santa Cruz. Við sýndum Kristínu og Einari "Santa Cruz Boardwalk" og "Natural Bridges Beach". Um kvöldið fórum við svo fjögur út að borða á frábæran Grískan veitingastað niðri í bæ, Dio Deka, frábær endir á góðum degi.

Daginn eftir keyrðum við niður til Carmel, röltum um bæinn, fórum á ströndina og römbuðum líka á listasýningu þar í bænum. Alltaf jafn gaman í Carmel. Í lok dagsins fóru svo Kristín og Einar aftur upp í borg.

Á sunnudeginum fór ég svo upp í borg og hitti skötuhjúin í hádegismat og eyddi deginum með Kristínu í San Fran.

Takk kærlega fyrir komuna Kristín mín og Einar, ofsalega gaman að sjá ykkur bæði. Hlökkum til að fá ykkur aftur :-)

Tuesday, May 15, 2007

Cinco de Mayo

Fórum í tvö Cinco de Mayo partý um þar síðustu helgi. Það fyrra var fjölskyldu partý hjá vinafólki okkar hér uppi í fjöllunum. Sund og matarboð, ofsalega gaman.



Eftir góðan mat, sund, góða drykki og frábæran félagsskap kvöddum við og drifum okkur heim. Skelltum stelpunum í háttinn, kölluðum á barnapíuna okkar og drifum okkur í hitt partýið. Það partý var bara eins og að koma á hinn besta skemmtistað, frábær tónlist, skemmtilegt fólk og góðir kokteilar. Mér fannst ótrúlegt hvað nágrannarnir voru þolinmóðir miðað við dúndrandi tónlist í garðinum þar sem þetta var garðpartý. Frábær Cinco de Mayo dagur.

Monday, May 14, 2007

Trjáklippingar

Síðustu helgar höfum við verið að taka garðinn okkar í gegn. Við fengum meðal annars trjákarla til að koma hingað og klippa trén okkar og snyrta. Þeir tóku líka niður risa stórt furutré sem við vorum með í garðinum, þvílíkur léttir. Í hvert skipti sem við notuðum trampólínið okkar þá þurti að sópa furunálunum af, þvílíkt vesen. Auk þess var þetta tré ekkert voða fallegt. Rétt eftir að þeir voru búnir að klára þetta verk hitti ég nágranna mína úti á götu. Þegar ég var búin að spjalla við þau í smá tíma þá fóru þau að spyrja hvort við hefðum gert e-ð við húsið okkar, einhverjar breytingar eða e-ð. Ferlega fyndið að bara það að klippa trén og taka til í garðinum okkar leiddi til þess að húsið okkar leit út fyrir að hafa farið í make-over. Svo nú blómstra rósirnar okkar og húsið lítur mun betur út.

Mæðradagurinn

Ég átti mjög góðan mæðradag á sunnudaginn síðasta. Fór fyrst ein í smá bæjarleiðangur að útrétta. Þegar ég kom svo heim biðu mín bakkelsi, blóm og fallegar heimagerðar gjafir frá stelpunum mínum og kort. Þvílíkt dekur. Um kvöldið var svo haldið út að borða á skemmtilegan mexíkanskan veitingastað sem er hérna hjá okkur. Ég segi enn og aftur þvílíkt dekur.