Gleðilegt ár allir saman og takk fyrir þau gömlu. Vonandi fengu allir jólakortin sín, við vor

um frekar sein að senda þau í ár.
Við kveðjum skemmtilegt og viðburðarríkt ár. Árið 2007 byrjaði á Íslandi, þar sem við eyddum jólum
og áramótum. Eftir heimkomuna aftur til Kaliforníu þá tók við skóli og vinna. Við skelltum okkur nokkrum sinnum á skíði uppi í Tahoe, þar sem stelpurnar fóru á skíðanámskeið og ég og Gummi á brettanámskeið, meiriháttar gaman.
Það var talsverður gestagangur hjá okkur á árinu. Við vorum svona meira vinnu/ráðstefnu stopp þetta árið, amk. miðað við í fyrra, en það er alltaf frábært

þegar fólk kemur við hjá okkur því það er SVOOOO gaman að fá gesti í heimsókn. Auk mömmu fengum við m.a. Kristínu og Einar til okkar.
Þó svo það hafi verið í stuttan tíma þá náðum við að fara með þau á ströndina, sýna þeim uppáhalds bæinn okkar,
Carmel, og uppáhalds veitingastaðinn okkar,
Dio Deka. Brynjar vinur hans Gumma kom líka í heimsókn og líka Gulli, frábært að sjá þá báða. Við hlökkum bara til að fá ykkur öll sem allra fyrst aftur. Í lok ágúst komu svo foreldrar Gumma og hittu okkur í San Diego þar sem við höfðum pantað þau til að passa fyrir okkur á meðan við Gummi tókum smá sveiflu í brúðkaupinu hjá Hildi og Felipe. Þau voru síðan hjá okkur þar til skólinn hjá stelpunum byrjaði aftur í september.

Í lok október kom svo Ása systir Gumma eftir að hafa verið á ráðstefnu og í verslunarferð í San Francisco. Þetta er að verða svona árlegur viðburður hjá henni og hlökkum við bara til að sjá hana aftur í október '08. Ég má nú ekki gleyma að Hildur vinkona kom svo og eyddi með okkur Thanksgiving. En það var ofsalega gaman að fá hana í heimsókn til okkar, sérstaklega þar sem hún kom á sjálfan afmælisdaginn minn.

Við sáum nokkrar mjög skemmtilegar sýningar á árinu, og má þar m.a. nefna
Body Worlds sýningu þar sem alvöru líkamar hafa verið gefnir til þess eins að sýna þá á þessari sýningu til lærdóms og fróðleiks fyrir aðra. Við tókum stelpurnar með og fannst öllum mjög áhugavert og skemmtilegt en ótrúlegt en satt ekki ógeðslegt. Stelpurnar meira segja gengu svo langt að verða svangar í miðri sýningunni, innan um alla líkamana, þar dró ég reyndar mörkin og fann ekki mikið til hungurs á þeirri stundu.
Við eignuðumst mikið af góðum vinum á árinu sem er að líða og við náðum líka að endurnýja gömul kynni við góða vini á Íslandi.
Annars gengur lífið sinn vanagang hérna. Gummi nýtur sín vel í Google, þar sem hann er ýmist á skrifstofunni sinni í Mountain View eða á sínu mánaðarlega heimshornarflakki. Stelpurnar okkar eru hæst ánægðar í sínum skólum og ballettum. Ýr mín skipti um ballettskóla og hefur aldrei verið eins ánægð, skil ekki af hverju við gerðum þetta ekki fyrr :-) og Elísabet blómstrar við sínar daglegu yoga æfingar sem eru gerðar á leikskólanum hennar og fílar þar mjög vel. Ég held áfram að taka ljósmyndir og tók líka upp á því að læra pilates til að kenna. Er sem sagt á fullu að læra það núna. Ætla að nota tækifærið hér og hvetja ykkur ÖLL til að skella ykkur í pilates :-)
Á þessu heimili hefur ríkt mikið dreka og hestaæði síðast liðið árið. Ýr mín les ekkert annað en drekabækur og fantasíubækur, og Elísabet tók upp á því að skrifa stafina svo nú gerir hún ekkert annað en að skrifa nöfn allra sem eru nálægt henni og reynir að skrifa sögur ýmist með myndum eða stöfum (stundum bara öllu í einu ).
Um áramótin fórum við svo í mat hjá vinum okkar sem búa hérna í fjöllunum fyrir ofan okkur. Borðuðum frábæran indverskan mat og spjölluðum fram á nótt. Þó að það sé ólöglegt að einstaklingar sprengi upp flugelda hérna þá er alltaf eitthvað um það og þar sem að við vorum stödd uppi í fjöllunum þá vorum við með besta útsýnið í bænum og sáum yfir stóran hluta af Silicon Valley og fengum því smá flugeldasýningu, sem var ofsa gaman.
Aftur óskum við ykkur alls hins besta á komandi ári og hlökkum til að sjá og heyra frá ykkur sem allra fyrst.
Knús og kossar, Edda, Gummi, Lilja Ýr og Elísabet Tara.