Wednesday, August 13, 2008

Um daginn og veginn

Tíminn líður allt of hratt, kominn miður ágúst og stelpurnar fara bráðum að byrja aftur í skólanum sínum.  Við erum búin að vera að slaka á og njóta góða veðursins hérna.  Ég kláraði Anatomiu námskeiðið mitt, sem er hluti af Pilates kennslunni minni, þarf núna bara að læra þetta allt utan að og taka prófið mitt :-)  Ýr fór á ballett námskeið sem lauk með mjög skemmtilegri sýningu.  Hún er síðan að fara á leikjanámskeið í næstu viku með vinkonu sinni.  Elísabet fór í 3 vikur á leikskólann sinn, síðan þegar ég spurði hana hvort hún vildi fara í eina viku í viðbót þá sagði hún nei og tilkynnti mér að hún væri BÚIN með þann skóla og vildi komast í nýja skólann sinn :-)  mjög ákveðin (hún er að fara að byrja í "alvöru" skóla núna í lok ágúst).
Við hjóluðum út í búð áðan til að kaupa í matinn, eða þær hjóluðu og ég skokkaði.  Það er ekki langt síðan Elísabet hætti að hjóla með hjálpardekkin svo hún er ennþá pínku lítið völt, ekki mikið samt.  Á leiðinni missti hún aðeins jafnvægið, náði ekki að stoppa sig og endaði inni í rósarunna :-( með skrámur sem náðu niður eftir öðrum handleggnum og öllu lærinu, greyið litla.  Apótekið var þarna rétt hjá okkur svo þangað fórum við og hreinsuðum sárin.
Annars erum við bara búin að hafa það gott og síðan er ferðinni heitið til New York í lok mánaðarins, allir mjög spenntir yfir því.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home