Monday, July 28, 2008

Íslandsferð

Í júní fórum við fjölskyldan í rúmlega 5 vikur til Íslands (Gummi var reyndar bara fyrstu 2 vikurnar þar).  Mikið rosalega var gaman.  Vorum í mjög góðu yfirlæti hjá pabba, takk kærlega fyrir okkur.  Náðum að hitta mikið af vinum og ættingjum.  Fórum á Gullfoss og Geysi, gengum upp á Esjuna (meira að segja Elísabet), hoppuðum milli matarboða og afmælisboða, fórum á Náttúrutónleikana, upp í bústað og margt margt fleira.  Eins og ég sagði ofsalega gaman.  Held samt að það hafi verið skemmtilegast hjá Ýr minni, hún hefur svo gaman af öllu frelsinu sem hún fær á Íslandi.  Hún fór á leikjanámskeið með frænku sinni og frænda, Survivor námskeið, og svo var bara leikið úti á Nesi alla daga og endalaus sleepover, ég vissi varla af henni.  
Elísabet mín fékk að fara í 2 vikur á leikskóla.  Ótrúlega gaman hjá henni og gott fyrir íslenskuna hennar.  Hún fór með leikskólanum að sjá brúðubílinn, "picnic" niður á Ægisíðuna , Húsdýragarðinn, safn Einars Jónssonar og fleira skemmtilegt.  Það var líka bara svo gaman hjá henni að geta leikið sér úti í öllum veðrum, bara sett í pollagallann.  Fyrsta daginn sem ég sótti hana þá sagði hún "mamma, það var so, so, so, so gaman", ferlega sætt.
Takk kærlega fyrir okkur, það var frábært að hitta ykkur öll.  Kíkið svo á myndirnar hér til hliðar undir nýjar myndir.

1 Comments:

Blogger herdist said...

Takk kærlega fyrir síðast. Það var mjög gaman að hitta ykkur öll.
Komið sem fyrst aftur:-)

kv. Herdís.

12:38 PM  

Post a Comment

<< Home