Thursday, May 22, 2008

Íþróttastelpan mín

Það var mikið að gera hjá Lilju Ýr um helgina.  Hún stóð í ströngu í síðustu viku við það að æfa fyrir ballettsýninguna sína sem var síðastliðinn föstudagsmorgun og föstudagskvöld.  Rosa skemmtileg sýning þar sem hún lék píanó og hest :-)  Hér er hún með góðum vinum sem komu að horfa á hana.
 
Hún þurfti síðan að mæta klukkan hálf sjö næsta morgun til að hlaupa í 5 Km maraþoni sem hún og nokkrar aðrar skólasystur hennar voru búnar æfa fyrir síðustu 12 vikurnar.  Sem betur fer var þetta svona snemma um morguninn því hitinn var orðinn óbærilegur klukkan 10 um morguninn.  Ýr stóð sig ótrúlega vel.  Það er svo fyndið hvað henni hefur farið fram í íþróttum.  Þetta er stelpa sem aldrei hefur haft NEINN áhuga á íþróttum.  Núna í ár hefur leikfimiskennarinn/sundkennarinn hennar komið til mín til að segja mér hversu mikið henni hefur farið fram í sundi, hún vildi endilega taka þátt í þessu maraþoni og hún er að fara á fótboltanámskeið á Íslandi í sumar. 
Á laugardagskvöldinu fór hún síðan í afmælispartý til vinkonu sinnar þar sem þeim var boðið að gista yfir nóttina og synda allt kvöldið.  Mín var mjög uppgefin á sunnudeginum eins og við var að búast.  Hér er hún eftir að hún kom í mark með vinkonum sínum.
  

1 Comments:

Blogger Unknown said...

Kæru vinir,

gaman að lesa um Ýr íþróttastelpu og hvað hún er að bralla. Frábært og greinilega mikið að gera hjá henni. Knús til ykkar allra. Hlökkum til að sjá ykkur á Íslandi í sumar (erum ekki ENNÞÁ búin að panta miðana samt!!).

IRG og co í St ALbnas

4:44 PM  

Post a Comment

<< Home