Wednesday, May 14, 2008

Hiti og mæðradagur

Úffff,  það er að koma rosa hitabylgja hérna hjá okkur næstu daga.  Það er frekar óvenjulegt miðað við árstíma.  Hitinn á að fara upp í 40 stig.  Það er verið að vara fólk við hitanum meira að segja.  Biðja fólk að keyra minna, grilla minna, vera inni og drekka mikið vatn!!!  Það verður líka mikið um heita vinda sem eykur hættuna á bruna.  Ég mun sennilega eyða miklum hluta af þessum tíma innandyra þar sem hún Elísabet mín er veik, með einmitt 40 stiga hita.

Annars var helgin mjög ánægjuleg.  Fórum í ofsalega skemmtilegt matarboð á laugardeginum hjá vinum okkar.  Á sunnudeginum var  svo mæðradagurinn fyrir þá sem ekki vita.  Ég var vakin upp með morgunmat í rúmið, heimatilbúnum (eða skólatilbúnum) kortum, föndri og kossum.  Gæti nú alveg vanist þessu á hverjum degi :-)  Þetta var ofsalega notarlegt.  Allan daginn var svo Elísabet alltaf að kyssa mig og knúsa, því að hennar sögn var ég besta mamman hennar (ekki það að hún eigi einhverjar fleiri mömmur :-)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home