Bíó fyrir hádegi!!!
Ég hef oft velt því fyrir mér hverjir það eru sem fara í bíó um miðjan dag (bíóin hérna byrja að sýna myndir fyrir hádegi suma daga). Á föstudaginn var ég ein af þeim. Ýr var í fríi úr skólanum svo ég og vinkona mín tókum eldri stelpurnar okkar (hennar var líka í fríi) í morgunmat og bíó. Það reyndist vera ferlega gaman. Vorum með bíóið út af fyrir okkur bókstaflega.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home