Tuesday, January 01, 2008

Áramótaannáll Kaliforníubúanna

Gleðilegt ár allir saman og takk fyrir þau gömlu. Vonandi fengu allir jólakortin sín, við vorum frekar sein að senda þau í ár.

Við kveðjum skemmtilegt og viðburðarríkt ár. Árið 2007 byrjaði á Íslandi, þar sem við eyddum jólum og áramótum. Eftir heimkomuna aftur til Kaliforníu þá tók við skóli og vinna. Við skelltum okkur nokkrum sinnum á skíði uppi í Tahoe, þar sem stelpurnar fóru á skíðanámskeið og ég og Gummi á brettanámskeið, meiriháttar gaman.

Mamma kom í heimsókn til okkar í lok febrúar og náðum við að gera margt skemmtilegt með henni. Fórum m.a. í nokkra daga á Avila Beach, sem er fallegur strandstaður fyrir sunnan, og líka á skíði þar sem við næstum festumst vegna mikillar snjókomu.

Það var talsverður gestagangur hjá okkur á árinu. Við vorum svona meira vinnu/ráðstefnu stopp þetta árið, amk. miðað við í fyrra, en það er alltaf frábært þegar fólk kemur við hjá okkur því það er SVOOOO gaman að fá gesti í heimsókn. Auk mömmu fengum við m.a. Kristínu og Einar til okkar. Þó svo það hafi verið í stuttan tíma þá náðum við að fara með þau á ströndina, sýna þeim uppáhalds bæinn okkar, Carmel, og uppáhalds veitingastaðinn okkar, Dio Deka. Brynjar vinur hans Gumma kom líka í heimsókn og líka Gulli, frábært að sjá þá báða. Við hlökkum bara til að fá ykkur öll sem allra fyrst aftur. Í lok ágúst komu svo foreldrar Gumma og hittu okkur í San Diego þar sem við höfðum pantað þau til að passa fyrir okkur á meðan við Gummi tókum smá sveiflu í brúðkaupinu hjá Hildi og Felipe. Þau voru síðan hjá okkur þar til skólinn hjá stelpunum byrjaði aftur í september.

Í lok október kom svo Ása systir Gumma eftir að hafa verið á ráðstefnu og í verslunarferð í San Francisco. Þetta er að verða svona árlegur viðburður hjá henni og hlökkum við bara til að sjá hana aftur í október '08. Ég má nú ekki gleyma að Hildur vinkona kom svo og eyddi með okkur Thanksgiving. En það var ofsalega gaman að fá hana í heimsókn til okkar, sérstaklega þar sem hún kom á sjálfan afmælisdaginn minn.

Það var ýmislegt brallað hjá okkur á árinu. Fórum meðal annars í “Easter-Egg Hunt”, “Cinco di Mayo” partý, í útilegur, sædýrasafnið og oftar en ekki á ströndina. Í október skelltum við Elísabet okkur til Disneylands með nokkrum vinkonum hennar og mömmum í tilefni af því að þær voru allar að verða 4ra ára á árinu. Þvílík prinsessuferð.

Í október var líka Halloween, sem stelpurnar bíða eftir á hverju ári með miklum spenningi.

Við sáum nokkrar mjög skemmtilegar sýningar á árinu, og má þar m.a. nefna Body Worlds sýningu þar sem alvöru líkamar hafa verið gefnir til þess eins að sýna þá á þessari sýningu til lærdóms og fróðleiks fyrir aðra. Við tókum stelpurnar með og fannst öllum mjög áhugavert og skemmtilegt en ótrúlegt en satt ekki ógeðslegt. Stelpurnar meira segja gengu svo langt að verða svangar í miðri sýningunni, innan um alla líkamana, þar dró ég reyndar mörkin og fann ekki mikið til hungurs á þeirri stundu.

Ýr tók þátt í nokkrum leik- og danssýningum á árinu. Helst ber að nefna “The Greek Mythical Musical” þar sem hún lék gyðjuna Hestiu og svo núna í desember í ballettsýningunni Hnotubrjóturinn þar sem hún var mús, piparkökukarl og “Bon-bon”. Þetta var meiriháttar sýning.

Eitt af því sem stendur upp úr hjá okkur á árinu var að fara til Íslands yfir sumarið, eða í alls 6 vikur. Þetta var í fyrsta skipti sem við komum til landsins að sumri til frá því við fluttum frá Íslandi. Það besta við ferðina var að við hittum svo mikið af okkar yndislegu ættingjum og vinum. Það sem stendur upp úr úr ferðinni var bæjarferð á 17. júní, við löbbuðum á Esjuna og fórum í veiðiferð út á Meðalfellsvatn. Fengum okkur ís í góðviðrinu á Austurvelli og fórum í hávaðaroki á ströndina í Nauthólsvík. Ýr mín fór á smíðanámskeið með frænku sinni og frænda, við fórum niður í fjöru, gáfum öndunum að borða, fórum á hestbak, sáum Dýrin í Hálsaskógi og fórum út að borða með góðum vinum. Auður systir og Stebbi drifu loksins í því að gifta sig (tími til kominn) og Sigga vinkona og Hlynur giftu sig líka. Bæði ofsalega falleg brúðkaup og frábært að geta verið viðstödd. Fengum líka að sjá nýjasta fjölskyldumeðliminn Gumma megin, litlu sætu Halladóttur. Ekki komumst við í tjaldútileguna sem til stóð að fara í en það verður alveg örugglega á listanum hjá okkur næsta sumar.

Við eignuðumst mikið af góðum vinum á árinu sem er að líða og við náðum líka að endurnýja gömul kynni við góða vini á Íslandi.
Annars gengur lífið sinn vanagang hérna. Gummi nýtur sín vel í Google, þar sem hann er ýmist á skrifstofunni sinni í Mountain View eða á sínu mánaðarlega heimshornarflakki. Stelpurnar okkar eru hæst ánægðar í sínum skólum og ballettum. Ýr mín skipti um ballettskóla og hefur aldrei verið eins ánægð, skil ekki af hverju við gerðum þetta ekki fyrr :-) og Elísabet blómstrar við sínar daglegu yoga æfingar sem eru gerðar á leikskólanum hennar og fílar þar mjög vel. Ég held áfram að taka ljósmyndir og tók líka upp á því að læra pilates til að kenna. Er sem sagt á fullu að læra það núna. Ætla að nota tækifærið hér og hvetja ykkur ÖLL til að skella ykkur í pilates :-)
Á þessu heimili hefur ríkt mikið dreka og hestaæði síðast liðið árið. Ýr mín les ekkert annað en drekabækur og fantasíubækur, og Elísabet tók upp á því að skrifa stafina svo nú gerir hún ekkert annað en að skrifa nöfn allra sem eru nálægt henni og reynir að skrifa sögur ýmist með myndum eða stöfum (stundum bara öllu í einu ).
Í ár ákváðum við að eyða frekar jólunum hérna í Kaliforníu, þar sem oftast einhver okkar verður veikur þegar við förum á þessum tíma til Íslands. Svo jólahátíðin hófst með jólasýningu í skólanum hennar Ýrar og hinu árlega skautaboði sem vinur hans Gumma og fjölskylda hans halda á hverju ári í Palo Alto.

Á aðfangadag borðuðum við gott íslenskt lambalæri með rauðkáli, brúnuðum kartöflum og grænum baunum. Opnuðum mikið pakkaflóð, takk allir saman fyrir frábæra pakka og hugulsemina. Á jóladag hélt svo íslenska hátíðin áfram með smá blandi af amerískri hátið. Ameríski jólasveinninn hafði nefninlega komið þá um nóttina, borðað smákökurnar sem við skildum eftir og drukkið mjólkina og skilið eftir pakka í jólasokkunum okkar og smá undir trénu. Við fengum okkur heitt súkkulaði og amerískar pönnukökur. Vinir okkar drógu okkur svo í bíó um miðjan daginn, mikil hefð hjá þeim og kannski tökum við líka þessa hefð upp þegar við eyðum jólunum hérna, þetta var svo gaman. Um kvöldið var svo borðað íslenskt hangikjöt með uppstúf og grænum baunum. Restinni af jólunum eyddum við svo í að slaka á, lesa bækur og háma í okkur Nóa konfekt.

Um áramótin fórum við svo í mat hjá vinum okkar sem búa hérna í fjöllunum fyrir ofan okkur. Borðuðum frábæran indverskan mat og spjölluðum fram á nótt. Þó að það sé ólöglegt að einstaklingar sprengi upp flugelda hérna þá er alltaf eitthvað um það og þar sem að við vorum stödd uppi í fjöllunum þá vorum við með besta útsýnið í bænum og sáum yfir stóran hluta af Silicon Valley og fengum því smá flugeldasýningu, sem var ofsa gaman.
Aftur óskum við ykkur alls hins besta á komandi ári og hlökkum til að sjá og heyra frá ykkur sem allra fyrst.
Knús og kossar, Edda, Gummi, Lilja Ýr og Elísabet Tara.

3 Comments:

Blogger singullinn said...

Gleðilegt árið og takk fyrir það gamla.
Hlökkum til að hitta ykkur sem fyrst á nýju ári.
Þúsund þakkir fyrir jólagjöfina og fallega jólakortið.
knús og kossar
Halli, Hrafnhildur og Elsa Rán

3:33 AM  
Blogger Unknown said...

Elsku fjölskylda, gleðilegt nýtt ár. Gaman að lesa annálinn hjá ykkur, mikið búið að gerast hjá fjölskyldunni á árinu. Pilates, já það hljómar spennandi.... Kannski ég prófi það einn daginn... Er einmitt að fara í mömmujóga sem byrjar trúlega í næstu viku. Við Pétur og Ingvi Daníel spjörum okkur vel og Ingvi Daníel dafnar og þroskast... Hann er farinn að skoða spegilinn sem þið gáfuð honum og hefur gaman af. Paddan er líka rosa flott og á hann eftir að skoða hana vel og mikið. Takk fyrir :-)
Takk líka fyrir jólakortið, skemmtilegt að fá svona margar myndir af fallegu systrunum.
Jæja, bið að heilsa í bili, knús

2:16 PM  
Blogger Kristín said...

Ji,hvað það var ótrúlega gaman að lesa annálinn hjá ykkur. Hugsið ykkur hvað það verður gaman að lesa þetta eftir 10-15 ár. Þetta er eitthvað sem maður ætti að gera á hverju ári. Hlakka til að sjá ykkur næsta sumar. Það væri frábært að fá ykkur í grillað læri á teini hingað á pallinn til okkar.
Fullt af kreistuknúsum og kossar.
Kristín og co

6:54 AM  

Post a Comment

<< Home