Tuesday, May 15, 2007

Cinco de Mayo

Fórum í tvö Cinco de Mayo partý um þar síðustu helgi. Það fyrra var fjölskyldu partý hjá vinafólki okkar hér uppi í fjöllunum. Sund og matarboð, ofsalega gaman.



Eftir góðan mat, sund, góða drykki og frábæran félagsskap kvöddum við og drifum okkur heim. Skelltum stelpunum í háttinn, kölluðum á barnapíuna okkar og drifum okkur í hitt partýið. Það partý var bara eins og að koma á hinn besta skemmtistað, frábær tónlist, skemmtilegt fólk og góðir kokteilar. Mér fannst ótrúlegt hvað nágrannarnir voru þolinmóðir miðað við dúndrandi tónlist í garðinum þar sem þetta var garðpartý. Frábær Cinco de Mayo dagur.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home