Monday, May 14, 2007

Mæðradagurinn

Ég átti mjög góðan mæðradag á sunnudaginn síðasta. Fór fyrst ein í smá bæjarleiðangur að útrétta. Þegar ég kom svo heim biðu mín bakkelsi, blóm og fallegar heimagerðar gjafir frá stelpunum mínum og kort. Þvílíkt dekur. Um kvöldið var svo haldið út að borða á skemmtilegan mexíkanskan veitingastað sem er hérna hjá okkur. Ég segi enn og aftur þvílíkt dekur.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home