Skíði, snjóbretti og aftur skíði
Hæ hó.
Núna erum við komin með þvílíkt skíðaæði. Við erum nefninlega nýkomin úr frábærri þriggja daga skíðaferð þar sem við fórum upp í Squaw Valley í Tahoe. Við fórum með vinafólki okkar, Sólveigu og Arnari og börnunum þeirra tveimur. Við settum Elísabetu og Ýr á skíðanámskeið og eftir það var Ýr bara alveg sjálfbjarga á skíðunum, rennir sér núna eins og drottning, og Elísabet lætur sig bara vaða án þess að kunna að fara í plóg eða stoppa sig, en finnst samt alveg ferlega gaman. Meiriháttar hjá þeim. Ég greip líka tækifærið og fór í snjóbrettakennslu. Það var alveg frábærlega gaman. Þegar kom svo að því að fara heim þá vorum við Ýr ekki alveg á því, það var of gaman hjá okkur. Þetta var líka ekki amarlegt skíðasvæði sem við fórum á , gamalt olympíu svæði. Svo nú bíðum við bara eftir því að komast aftur sem allra fyrst.

2 Comments:
En gaman hjá ykkur!! Væri ofsalega gaman að sjá myndir:-) Bestu kveðjur frá Englandi,
Inga Rósa og fj.
ha ha, smá fljótfærni hjá mér..... gerði ráð fyrir að ég kæmist ekki inn á myndasíðuna eins og undanfarið - en ég komst núna !! Mjög flottar myndirnar og gaman að sjá hvað stelpurnar eru duglegar á skíðunum. Bestu kv, Inga Rósa
Post a Comment
<< Home