Thursday, November 02, 2006

Trick or Treat

Halloween dagur var mjög "busy" dagur hjá okkur, en líka mjög skemmtilegur. Greyið Gummi gat ekki notið hans með okkur þar sem hann þurfti að vinna fram á kvöld. En þetta er nú samt einu sinni dagur fyrir krakkana :-)
Hann hófst á því að Ýr fór í búningnum sínum í skólann. Núna er hún sem sagt vaxin upp úr því að vera prinsessa og svol. er komin í það að vera meiri pæja. Í árákvað hún að vera norn, eða einhvers konar skóla norn!!! Sjáið bara myndirnar hér til hliðar. Ég setti á hana svar-rauðan varalit og lakkaði neglurnar hennar svartar. Elísabet fór í sinn skóla og ég og Ýr upp í hennar, því ég var að hjálpa til við partý sem 3. og 4. bekkirnir voru með, nammi, leikir og skrúðganga um skólalóðina með hinum bekkjunum, ferlega gaman. Allir voru í búningum, sjáið myndirnar til hliðar.
Elísabet fékk að vera prinsessa og fékk andlitsmálningu á leikskólanum sínum.
Eftir skóla fór Elísabet í fimleikana sína og Ýr í jazzballettinn sinn. Ýr var með smá danssýningu þar sem dansað var við lagið í Gost busters, mjög tilheyrandi.
Eftir það brunuðum við mæðgurnar heim til að fara aftur í búningana. Þegar við vorum tilbúnar þá var klukkan að verða 6, svo við hentumst í bílinn og fórum í partý hjá vinkonu Ýrar. Þar var drukkið og borðað og spjallað.
Ég gleymdi að minnast á það að ég var svört kisa þetta kvöldið, fékk mér skott og eyru og klæddi mig í svört föt. Í partýinu þá hitti ég lítinn 3ja ára aðdáanda. Hann elskar kisur svo hann ákvað að halda ýmist í puttann á mér eða skottið mitt mest allt kvöldið, ótrúlega sætt.
Klukkan 7 var svo kominn tími á að fara í "trick or treat". Krakkarnir tóku pokana sína og allir fóru að labba á milli húsann í hverfinu og safna nammi í pokana sína. Ýr hljóp á undan með nokkrum vinkonum sínum og ég og Elísabet löbbuðum um með vinkonu hennar (líka 3ja ára) og foreldrum hennar. Þetta var mjög arðbær ferð því þær systur fengu ótrúlega mikið nammi.

Þetta var mjög skemmtilegur dagur, gaman að sjá alla þessa búninga.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home