Google sumarskemmtun
Vorum á hinni árlegu Google fjölskylduskemmtun fyrir nokkrum vikum. Meiriháttar skemmtun. Sjáið bara fyrir ykkur 17. júní á Íslandi, nema allt er ókeypis og það er sól. Hátiðin var haldin í garði sem er rétt hjá Google þar sem þemað hjá þeim var "Mad Hatters Day", við hittum Lísu í Undralandi, kanínuna og Mad Hatter. Þar voru svo klifurkastalar fyrir börn og fullorðna, mini dýragarður með geitum, svíni og kanínum, trúðar sem gerðu skrýtnar blöðrur, sápukúlur, matur, nammi og ís. Þetta er allt í boði fyritækisins, mjög skemmtilegt allt saman.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home