Mogginn
Ef þið hafið ekki séð sunnudags Moggann nú þegar, þá endilega kíkið á hann. Þar er viðtal við Gumma minn. Þeir voru að setja á markaðinn svo skemmtilegt forrit. Við erum nú þegar búin að nota það á nokkrum ferðalögum hér um Kaliforníu. Viðtalið er reyndar líka á mbl.is en þar vantar fínu myndina af honum :-)
Moggaviðtal
Edda.
Moggaviðtal
Edda.

3 Comments:
Hæ hæ
Ég las einmitt viðtalið í blaðinu og sá sætu myndina af Gumma. Gott hvað gengur vel hjá honum. Sniðugt forrit. Já ég fór líka á Klambratún á sunnudagskvöldið og sá Sigurrós eða hlustaði öllu heldur. Svaka skemmtilegt. Var svo á ströndinni (Nauthólfsvík) í dag í bongóbliðu, og sit nú rauð og sælleg nýbúin að renna niður góðum kjörísbragðarref:-)
kærar kveðjur frá sólinni í Reykjavík.....
Takk fyrir kveðjurnar stelpur. Ásdís það er ekkert mál að koma þeim í samband við okkur, það er reyndar mjög langt í Santa Barbara héðan. Þetta er næstum eins og að hafa kontakt á Akureyri :-) En ég hjálpa þeim eins og ég get, síðan er oft gott líka að þekkja e-n hér á svæðinu.
Auður, gaman að heyra frá þér, endilega sendu mér símann þinn nýja svo ég geti hringt í þig.
Hvernig var Svíþjóð Herdís? Gott að veðrið er farið að batna hjá ykkur, líka hjá okkur, ekki svona ferlega heitt lengur.
Engin Nauthólsvík í dag... rigning rigning rigning og aftur rigning. En Svíþjóð var frábær, gott veður og mjög fallegt land. Við fjölskyldan höfðum það mjög gott. En ertu búin að breyta lykilorðinu í albúmið þitt? ég komst ekki inn.
kv. Herdís.
Post a Comment
<< Home