Disneyferð og stóra fjölskyldan síðan kvödd
Jæja, núna er stóra fjölskylduheimsóknin hjá okkur búin, þ.e. Ausa systir og fjölskylda eru farin heim aftur. Rosalega var gaman að hafa þau hjá okkur og það var MIKIÐ um að vera í litla húsinu okkar eins og þið getið ímyndað ykkur. Eins og ég sagði áður þá fórum við í síðustu viku til LA nánar tiltekið til Disneylands. Það var alveg frábært, veðrið var í heitari kantinum og mikill raki en við létum það nú ekki skemma fyrir okkur. Sáum eina flottustu flugeldasýningu sem ég hef séð og aðrar frábærar sýningar sem voru í tilefni af 50 ára afmæli Disney garðsins. Fengum okkur líka morgunmat með Mínu Mús og félögum hennar. Fórum í sund í lauginni hjá Pétri Pan þar sem krakkarnir fengu þvílíka útrás og gátu kælt sig í hitanum.
Eftir rúmlega 3 daga í Disney keyrðum við til San Diego, þar sem við slöppuðum af við sundlaugarbakkann og kíktum líka örstutt í Sea World, alltaf gaman þar.
Afmælisdeginum hennar Ýrar eyddum við svo í að keyra aftur heim, 8 tíma ferðalag. Ýr var alveg sátt við það því þetta var búin að vera svo frábær ferð hvort eð er. Síðan vissi hún líka að við ætluðum að fá köku daginn eftir heima.
Á leiðinni heim frá San Diego, eftir að við vorum búin að keyra í ca. 45 mín. þá gubbaði hún Elísabet mín, greyið litla. Svo það var keyrt út í kannt, Elísabetu, bílstólnum og öðru dóti húrrað út úr bílnum og og allt þrifið í 40°C brjáluðum hita. Aldrei dauð stund hjá okkur Hafsteinsfólkinu :-) Litla skinnið hún Elísabet var síðan svo slöpp að hún steinsofnaði eftir allt þetta og svaf hálfa leiðina. Enn eins og ég hef sagt ca. 500 sinnum hér þá var þetta frábær ferð.
En nú eru Auður og co. farin heim og ég verð að segja að það er frekar mikið tómlegt hérna í húsinu okkar. Elísabet er reyndar enn veik greyið, en hún er samt öll að hressast. Ég gleymi nú reyndar alveg að minnast á það að hún mamma er komin hingað til okkar svo það er nú ekki alveg tómt í húsinu, sem betur fer. Alltaf gaman að hafa fólk í heimsókn hjá okkur.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home