Wednesday, May 10, 2006

Góð helgi

Við áttum frábæra helgi, enda varla annað hægt þegar veðrið er svona gott, 25°C og sól. Á föstudeginum gisti vinkona Ýrar hjá henni. Ég þarf nú varla að taka það fram hvað það var gaman hjá þeim. Á laugardeginum kom svo önnur vinkona hennar í heimsókn og eyddi deginum með okkur. Þær ætluðu nú að byrja á því að leika sér inni en ég setti teppi út og dró bara allt Polly Pocket dótið og hesta dótið út og þær léku sér úti í garði. Ég setti síðan upp lítið kastalatjald og þá sögðu þær "Wow, it's like we're in heaven", ótrúlega fyndið. Seinnipart dagsins komu svo vinir okkar, Arnar og Sólveig og börn, í heimsókn og við grilluðum saman og borðuðum úti, enda við hæfi þar sem við vorum að taka út allt sumardótið okkar. Nú er bara að vona að það fari ekki að rigna aftur :-)

Á sunnudeginum hittum við svo vini okkar aftur í frábærum garði sem er hérna hjá okkur. Þar er róló, lítil lest sem keyrir um garðinn, hringekja og risa stór garður sem hægt er að leika sér í og fara í picknick, meiriháttar gaman. Svo við mættum þar með nesti og bolta. Við fórum líka í lestarferð og nokkrar hringekjuferðir. Um kvöldið komu svo Hrefna, Finnur og Anna Sólrún í heimsókn til okkar og við grilluðum aftur. Eins og þið sjáið þá var þetta mjög góð helgi.

Kv. Edda.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home