100 ára met slegið
Jæja nú hafa veðurguðirnir slegið 100 ára met í rigningu. Hér hefur rignt í 22 daga af mars mánuði og hann ekki enn búinn. Fyrra met var 21 dagur í sama mánuðinum og það var árið 1906. Við fórum upp í fjöllin um helgina og mér leið ekki vel að keyra eftir þröngum fjallavegum þegar það er búið að rigna svona mikið hérna. Sérstaklega þegar við komum að stað þar sem hluti af veginum hafði hreinlega gefið sig (ekki okkar helmingur samt :-)
Við keyrðum svo fram á risastórt stöðuvatn þar sem venjulega er þurrt land en það er búið að rigna svo mikið að þetta þurra land var löngu sokkið. Nokkrar myndir hérna til að sýna ykkur. Takið eftir skiltinu vinstra megin á fyrstu myndinni og hvað stendur á því. Þarna voru tré á kafi úti í miðju vatninu, ferlega fyndið. Nú bara vonum við og krossum fingur að það hætti að rigna því hún Hrund systir mín er að koma í næstu viku og mig langar að gera ýmislegt með henni úti. Enda er líka búið að safna nægu vatni fyrir næsta vetur.
Kv. Edda.

1 Comments:
Hæ hæ
vá engin smá rigning þetta!! en þetta eru engu að síður mjög flottar myndir Edda!
Hvernig gengur í náminu?
Annars allt fínt að frétta af okkur. Krakkarnir bara vaxa og dafna og allt gengur sinn vanagang.
Kv Herdís
Post a Comment
<< Home