Saturday, December 24, 2005

Jólaveður???

Verð nú aðeins að deila með ykkur veðrinu hérna. Ég fór út í matvörubúð hérna áðan, því það vantar alltaf e-ð á síðustu stundu :) Þar var fólk á stuttermabolum og jafnvel hlýrabolum með sólgleraugu. Þetta var alveg ótrúlegt, hef ekki upplifað svona aðfangadag áður. Þegar ég svo vaknaði í morgun þá var einhver nágranninn að slá grasið sitt. Nánar tiltekið er 21°C hérna og sól. Er þetta jólaveður???

1 Comments:

Blogger herdist said...

Hæ hæ og gleðileg jól.
Hér er búið a vera frekar heitt yfir jólin. Það var smá jólaföl yfir öllu á Þorlák og allt leit voða vel út. En á aðfangadag var búið að rigna öllu burt og er nú í dag rigning og og frekar eins og það sé september frekar en 27.des. Við erum kannski ekki alveg í hlýrabolnum en flíspeysan dugar:-)

Kveðja Herdís

6:04 AM  

Post a Comment

<< Home