Indian Summer
Veðurfarið hérna er furðulegt fyrirbæri. Á morgnana þá er það kalt úti að um daginn leitaði ég uppi flíspeysuna mína og vestið mitt. Í kringum hádegið þá er orðið það hlýtt að allir eru komnir í stuttermabol og pils. Þegar kemur svo að kvöldmat þá fer að kólna all verulega og á næturna er orðið mjög kalt (mjög kalt á Californiu mælikvarða). Svona er veðurfarið hérna á haustin og kallast víst Indian Summer. Þegar ég er að keyra í skólann á morgnana (þessa tvo morgna í viku sem ég þarf að fara) þá er það svo snemma á morgnana (6.30) að þegar ég keyri á hraðbrautinni þá sé ég hvernig þokan læðist yfir fjöllin frá sjónum, ofsalega fallegt.
Í dag var skemmtun uppi í skólanum hennar Ýrar, kallaðist Walkathon. Þeir sem tóku þátt áttu að labba ákveðna leið inni á skólalóðinni sem lá nokkurn veginn í hring, en upp og niður hæðir og hóla. Eftir hvern hring sem hvert barn labbaði þá safnaðist peningur fyrir skólann. Krakkarnir voru öll með spjöld sem þau létu haka í eftir hvern hring. Eftir fjórða hvern hring þá fengu þau gúmmíarmbönd í mismunandi litum. Það var svo fyndið hvað þau voru dugleg að labba. Þarna voru líka ýmsir leikir og matur fyrir alla. Reyndar máttu allir labba, foreldrar, ættingjar og systkini en bara nemendur söfnuðu pening, hinir löbbuðu bara til stuðnings. Eftir að Elísabet var búin að horfa á krakkana labba í þó nokkurn tíma og búin að fá sér pulsu þá ákvað mín að labba líka, svo við löbbuðum saman fjóra hringi, sem samsvaraði einni mílu (1.6 kílómetra), geri aðrir 2ja ára betur :) Þetta var annars allt saman voða gaman. Ýr og hennar vinkonur löbbuðu nánast non-stop frá klukkan 1 til 5, mikill metnaður í gangi. Nú er mín steinsofandi inni alveg uppgefin.
Annars er búið að vera talsvert um gesti hér hjá okkur. Fyrst kom systir hans Gumma í nokkra daga. Ofsa gaman að fá hana. Síðan nokkrum dögum seinna komu foreldrar hans og voru hér í viku. Voru reyndar að fara aftur til Íslands í kvöld. Mjög gaman að hafa þau hérna hjá okkur.
Ég steingleymdi að óska honum Árna Snæ innilega til hamingju með afmælið um daginn, var reyndar búin að því í sept. því ég fór mánaðarvilt :)
Set hér inn eina myndina enn sem ég tók fyrir einn tímann minn, enjoy.

Jæja ég ætla að sofa núna, góða nótt allir.
Kv. Edda.

1 Comments:
Hæ hæ
Gaman að fá fréttir af ykkur. Þið eruð eitthvað svo langt í burtu. Héðan er allt fínt að frétta. Bubmubúinn vex og sparkar, Elsa Björg syngur og les þess á milli. Árni Snær spilar á gítarinn sinn og er þessa helgi að ganga til rjúpna með pabba sínum og afa í fyrsta skiptið,, enda orðin NÍU. Hann fer í samræmd próf í næstu viku!!!
Bjarki er mikill fótbolta strákur og mjög duglegur í skólanum. Við Stulli erum að hugsa um að taka baðið í gegn áður en litla krílið fæðist, en við vorum að klára að glerja alla suðurhlið húsins, enginn smá munur. Er farin að minnka við mig vinnu og fer bráðum að hætta að vinna. Annars einkennast nætu vikur á bið... eftir henni eða honum.
Kveðja Herdís.
Post a Comment
<< Home