Tuesday, August 09, 2005

Los Gatos

Ég var að setja inn nokkrar myndir og meðal annars myndir af bænum okkar, Los Gatos. Þið verðið að fyrirgefa gæðin á myndunum, það var farið að dimma og ég ekki með þrífótinn minn, þess vegna eru þær sumar hreyfðar og frekar dökkar, samt er ég búin að Photoshopa þær. En þið sjáið nú samt í grófum dráttum bæinn okkar. Þetta er mjög fallegur lítill bær (lítill á amerískan mælikvarða). Gummi er sennilega ca. 25 mín. í vinnuna sem er alls ekki slæmt hér í Bandaríkjunum. Í fyrsta skiptið í 2 ár þá getum við setið inni í eldhúsi og borðað matinn okkar, ferlega fyndið hvað maður getur saknað þess.
Knús, Edda og co.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home