Wednesday, June 01, 2005

Merkisdagurinn 1. júní, útskrift o.fl.

Ég vil byrja á því að óska henni mömmu minni innilega til hamingju með afmælið í dag. Vonandi áttir þú yndislegan dag mamma mín og gerðir e-ð skemmtilegt.

Annars er Gummi að fara að útskrifast á föstudaginn næsta. Alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Það verður rosa athöfn og svo ætlum við út að borða um kvöldið. Á sunnudaginn ætlum við svo að bjóða Íslendingunum til okkar. Foreldrar hans Gumma eru í heimsókn hjá okkur núna og verða yfir útskriftina, voða gaman að sjá þau.

Ég fór til Hildar um síðustu helgi, ofsa gaman að sjá hana. Ég kom á föstudegi og var fram á sunnudag. Við fórum í búðir, borðuðum góðan mat og slöppuðum af. Röltum í Central Park á sunnudeginum í frábæru veðri. Á laugardagskvöldið fórum við út að borða á voða sætum ítölskum stað. Ég pantaði mér sverðfisk og Hildur fékk sér túnfisk, ofsalega góður matur. Þessi staður bauð upp á frábærar sangriur. Seinna um kvöldið fórum við svo í partý á einhverjum skemmtistað þarna.

Ég ætla að sofa núna, bið að heilsa ykkur öllum, Edda.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home