Monday, March 07, 2005

Hæ allir vonandi kíkið þið enn á síðuna þó svo ég sé svona löt að skrifa.

Annars allt gott að frétta af okkur. Það er enn allt á kafi í snjó hjá okkur og á víst að snjóa meira núna í vikunni, jibbííí. Þetta er alveg orðið ágætt finnst mér, vil fara að fá sumarið. Eins og flestir kannski vita þá er Gummi að útskrifast núna í vor og búinn að fá vinnu í Californiu, svo þangað erum við að flytja í sumar. Þetta er mjög skemmtilegt og fallegt svæði.
Ég fór þangað núna í febrúar, í nokkra daga, til að skoða svæðið og finna gott hverfi til að búa í. Það var voða gaman, en skrýtið að fara svona ein. Það var líka talsvert betra veður þarna á vesturströndinni heldur en hérna.

Annars eru Ýr og Gummi bæði bara á fullu í skólunum sínum og Elísabet alltaf að stækka og læra nýja hluti.
Hér er ein fyndin saga af henni Elísabetu. Hún er alltaf að herma eftir hundunum, "uff uff uff" segir hún ef hún sér eða heyrir í hundum, eða ef við segjum "hvað segir voffi?". Svo löbbuðum við mæðgurnar um daginn fram hjá Victoria Secret búðarglugga sem var full af bleikum og doppóttum hundum af ýmsum stærðum. Elísabet byrjaði á fullu að gelta og gelta, æddi inn í búðina og út í glugga og ætlaði að ná sér í einn svona fínan bleikan hund. Ég gleymdi líka að minnast á það að hún ELSKAR allt bleikt, hljómar eins og einhver sem er skildur henni og er að verða sjö í sumar??? Ég þurfti sem sagt að toga barnið öfugt og geltandi út úr búðinni. Aldrei dauð stund með henni Elísabetu minni. Ferlega fyndið, a.m.k. fannst afgreiðslukonunum það.


Jæja ætla að sofa núna, hundakveðjur til ykkar allra, Edda.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home