Sunday, September 26, 2004

Haustpylsur með remólaði

Frábær dagur í gær. Fórum í frábært grillpartý sem stóð allan daginn og langt fram á kvöld. Vorum þarna með um 30 öðrum Íslendingum, með íslenskt remólaði og íslenskan steiktan lauk og bjór, vantaði bara SS pylsurnar. Lögðum sem sagt hverfið hennar Nönnu undir okkur. Veðrið gat ekki verið betra, nánast of gott, ef það er hægt. Setti nokkrar myndir hér inn á.

En ég byrjaði nú daginn á því að skella mér í pilates og sé ekki eftir því. Mjög góðar æfingar, ætla að reyna að fara reglulega. Trúi ekki að ég sé búin að búa hér í þessum frekar litla bæ (íbúafjöldinn er einn sjöundi af íbúum Íslands) án þess að finna þennan pilates stað, en betra seint en aldrei ekki satt. Hann er nánast bara hinum megin við götuna, svo það er stutt að fara.

Var líka að byrja með Elísabetu í leikfimi, henni finnst SVO gaman. Erum búnar að fara nokkrum sinnum. Þarna eru nokkur önnur börn, m.a. sæta Mist hennar Nönnu. Þetta er svo örvandi fyrir Elísabetu, hún er að í 45 mínútur og svo lognast hún bara útaf á leiðinni heim alveg búin á því. Hennar uppáhhalds dót er rugguhesturinn, hún sest á hann og ruggar sér eins og brjáluð, ferlega fyndið. Setti nokkrar myndir þaðan inn á.


0 Comments:

Post a Comment

<< Home