Friday, September 24, 2004

Slöpp - þreytt - afmæli

Ég var svo ferlega slöpp í gær, með beinverki og allt, dagurinn leið bara í móðu einhvern veginn, en ég var þó ekki með hita . Ég náði samt að skella mér á kaffihús með nokkrum vinkonum. Fórum á þetta fína kaffihús hér í Arlington, Carberry´s, sem rekið er af Íslendingi. Það var með sófa og allt svo okkur leið bara eins og í Friends, fyrir utan börnin sem voru með okkur og að við vorum bara fimm. En við ætlum að reyna að gera þetta að föstum fimmtudags viðburði. Ég hlakka því mikið til næsta fimmtudags, vonandi verð ég mun hressari þá.

Annars vil ég óska systur minni Auði innilega til hamingju með daginn í dag og henni Nínu minni skólapíu innilega til hamingju með daginn í gær, vonandi verður gaman í partýinu hjá þér á laugardaginn.

Ég var að bæta inn nokkrum myndum frá því ég fór með vinkonum mínum út að borða um daginn. Fórum nokkrar góðar saman út á lífið. Þær búa flestar hér á Bostonsvæðinu og nokkrar þeirra með mér í saumó. Byrjuðum á því að hittast heima hjá Brynju sem býr á prima stað í miðbæ Boston og fengum þar heimatilbúið Sangria og meðlæti, allt alveg frábært. Fórum svo á stað í Boston sem heitir Sophia´s, bæði veitingastaður og dansstaður. Byrjuðum á því að fá okkur fínan tapas mat, hef aldrei prófað það áður svo það var mjög gaman, fórum svo á efri hæðirnar í djammið. Það tók því varla að taka myndavélina með því eftir nokkrar myndatökur varð hún batteríslaus :) svona er þetta, get þó birt myndir af okkur að borða.

Ég ætla að skella mér að sofa þar sem klukkan er að ganga eitt, engin furða að ég verði slöpp þegar ég fer svona seint að sofa, fyrir utan að ég þarf að vakna svona 2svar á nóttu með Elísabetu !!! Verð að venja hana af þessu.

Er að fara í fyrsta pilates tímann minn á morgun, hlakka til/ekki alveg að nenna því tilfinning í gangi, hlakka samt meira til en hitt. Um eftirmiðdaginn förum við svo í grillpartý til Nönnu og fjölskyldu þar sem verða fullt af Íslendingum.

Góða nótt, Edda.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home