Nóvember
Hver sagði að það væri erfitt að verða þrítugur!!! Ég held að ég hafi aldrei fengið jafn margar afmæliskveðjur og hringingar á afmælisdaginn minn og jafn frábærar gjafir. Takk kærlega fyrir mig allir saman.
Afmælisdagurinn var meiriháttar, ég eyddi honum með Gumma og stelpunum mínum og Hildi vinkonu sem var í heimsókn hjá okkur. Það var mikið slappað af og borðaður góður matur.
Kvöldið áður fór ég með vinkonum mínum út að borða og við þræddum nokkra skemmtistaði, alveg frábært kvöld.
Ég væri sem sagt alveg til í fleiri þrítugsafmælisdaga :)
Annars er allt gott að frétta af okkur hérna. Vikuna fyrir Thanksgiving fengum við öll einhverja pest, lágum öll heima slöpp og skemmtileg. Daginn fyrir Thanskgiving þá kom Elín vinkona mín í heimsókn til okkar. Það er meira en ár frá því ég sá hana síðast og það var rosa gaman að fá hana í heimsókn. Á Thanksgiving dag fórum við öll til Hjalta og Ernu, sem búa hér rétt hjá, og elduðum þar kalkún og meðlæti, allt ótrúlega vel heppnað og skemmtilegt.
Ég gleymdi næstum að segja ykkur frá því að það snjóaði hjá okkur um daginn. Svo mikið að við gátum farið út og gert RISA snjókarl (með gulrótarnef og allt). Við fórum líka í brekku sem er hér næstum í bakgarðinum okkar og renndum okkur þar á snjóþotu. En snjórinn var ekki lengi hjá okkur því hann var alveg farinn tveimur dögum seinna. En þetta var gaman á meðan það varði.
Kveð núna þar sem ég ætla að fara að sofa, góða nótt Edda.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home