Thursday, November 04, 2004

Afmæli o.fl.

Enn og aftur hef ég verið löt að skrifa.

Ég vil byrja á því að þakka kærlega fyrir afmæliskveðjurnar og hringingarnar á fyrsta afmælisdaginn hennar Elísabetar minnar, miðvikudaginn síðasta. Takk kærlega fyrir hugulsemina og skemmtilegar kveðjur. Gaman hvað margir mundu eftir þessum merkilega degi.

Við áttum mjög góðan dag, rólegan en góðan. Við vorum með íslenskan hrygg í kvöldmat, ofsalega góður, mikið uppáhald hjá mér.
Matreiðslan hjá okkur gekk nú samt ekki áfallalaust fyrir sig, það gekk nú á ýmsu þegar ég var að brúna sykurinn fyrir kartöflurnar og svo gleymdi ég næstum því hryggnum inni í ofni. En ég held að það þurfi mikið til að skemma svona máltíð og hún heppnaðist bara mjög vel þó ég segi sjálf frá. Hryggurinn mjög djúsí og kartöflurnar sykurbrúnaðar og fínar. Við vorum meira að segja með grænar Ora baunir í dós. Við áttum reyndar líka rauðkál en við ákváðum að henda því þar sem það var frekar langt síðan við keyptum það, leit ekkert voða vel út (við keyptum það í IKEA í sumar, eini staðurinn til að fá rauðkál hér).

Ég gerði nú góða tilraun til að baka afmælisköku þar sem mér finnst svo gaman að baka. Ég setti kökudeigið í formið og ætlaði að setja það inn í ofninn en þegar ég lyfti upp forminu þá losnaði það í sundur, þannig að deigið lak niður eftir buxunum mínum, á eldhúsinnréttinguna og endaði á gólfinu :) Það varð nú ekki mikið úr þeirri köku, vildi ómögulega skrapa deigið upp af gólfinu.
En sóðaskapurinn í eldhúsinu var ekki alveg kominn í hámark. Því ekki var nóg að hafa allt út um allt eftir eldamenskuna og kökudeigið niður eftir allri eldhúsinnréttingunni og á gólfinu. Það sem toppaði sóðaskapinn var þegar Gummi greyið opnaði flösku með gosi í sem hafði verið kæld inn í frysti og við það skaust allt innihaldið úr flöskunni og lenti um ALLT eldhúsið. Við erum nú með mjög lítið eldhús svo þetta var bara ennþá fyndnara fyrir vikið, því allt var þakið einhverju sulli. Þarna stóðum við með súkkulaðiköku á neðrihelmingnum á innréttingunni og gos á efri og notuð matarílát út um allt. Við vorum mikið að spá í að leita að földu myndavélinni.

En við áttum sem sagt mjög gott kvöld. Elísabet tók upp pakkana sína og var mjög kát með dótið sitt, sérstaklega litla Fisher Price minivaninn sem hún fékk frá systur sinni (hann gefur frá sér ýmis skemmtileg hljóð). Svo fylgdi líka með minivaninum lítið barn og auðvitað kona, því hér í USA keyra bara konur um á minivan, mennirnir keyra um á stórum pallbílum, karlmennskan í hámarki.

Á sunnudaginn síðasta fórum við svo í Trick or Treat inn í Cambridge, þeir sem ekki vita hvað það er þá er það þegar krakkarnir klæðast búningum á Halloween og fara hús úr húsi og biðja um nammi. Þau segja "trick or treat", hefðin er sú að ef þau fá ekki nammi þá getur húseigandinn búist við einhverjum grikk, t.d. klósettpappír út um alla lóð og eggjakast og svol.
Við fórum sem sagt inn í Cambridge, sem er bara næsti bær við okkur þar sem Erna og Hjalti búa ásamt börnunum sínum Andreu og Þórarni. Veðrið var alveg frábært og stemmningin meiriháttar. Það var svo gott veður að fólk sat úti á palli hjá sér með nammið og beið eftir krökkunum. Það var búið að skreyta sum húsin svo mikið að ég hef aldrei séð annað eins, ferlega gaman. Eitt húsið var Shire úr Lord of the Rings, annað húsið var svo skelfilegt að Ýr þorði ekki að fara upp að því og ná í nammið, það þarf nú að vera ansi skelfilegt til að barn neiti namminu. Pallurinn fyrir framan húsið var allt þakið köngulóarvef og fyrir framan útihurðina sat strákur sem var í svartri skykkju með rauða "horror"grímu fyrir andlitinu og snöru um hálsinn. Hann sat með svartan pott með nammi í og það eina sem stóð út úr skykkjunni var beinagrindahönd. Ef þið vitið það ekki fyrir þá á Halloween að vera svolítið "scary". Svo greip hann stundum með beinagrindahöndinni í þá sem reyndu að ná í nammi í pottinn. Þetta var rosalega flott. Svo voru sum húsin með legsteina í garðinum og reykvél til að gera þetta meira spúkí. En sem betur fer voru ekki öll húsin svona hræðileg. Mörg voru bara með skemmtilega dansandi drauga eða útskorin grasker. Það er nefninlega mikil hefð að skera út grasker fyrir Halloween.

Við gerðum það t.d. ég, Erna, Ásta og krakkarnir okkar. Nokkrum dögum fyrir Halloween þá komum við saman í garðinum hjá mér og skárum út nokkur grasker, ferlega gaman en mikil vinna. Svo eru sett kerti inn í graskerin og þau sett fyrir utan hús. Ef maður er heppinn þá narta íkornarnir ekki í þau :)

Jæja ætla að sofa núna, kveð ykkur öll, Edda.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home