Snjókoma í Boston
Ég vil bæta aðeins við póstinn áðan og segja ykkur frá snjóbylnum sem við lentum í um seinustu helgi (22.-23. jan.). Ég hef ekki séð svona mikinn snjó í MÖRG ár. Á einni helgi þá fór allt á kaf hér og er enn á kafi. Þegar maður keyrir um hverfin þá sér maður bíla sem eru það mikið á kafi að aðeins sést í hliðarspeglana eða smá í skottið. Svo sér maður skafla í vegköntunum sem eru það háir og stórir að það gæti vel verið að það leynist bíll þar undir en enginn veit það fyrr en fer að þiðna, sem gerist líklega ekki á næstunni því nú er í gangi kaldasta tímabilið á árinu. Sem dæmi um kuldann þá mældist hitastigið hérna -19°C og svo er mælt hversu hitastigið er lágt í raun og veru þegar vindurinn hefur verið tekinn inn í dæmið og það mældist -30°C, sem sagt of kalt til að fara út því það bókstaflega frýs uppi í nefinu á manni. Enda komu nokkrir dagar núna í síðustu viku þar sem við fjölskyldan vorum allan daginn á náttfötunum og nutum hlýjunnar inni. En ég læt fylgja með nokkrar myndir af okkur í snjónum eftir storminn.
Þar sem við búum núna er svo góð þjónusta að við þurftum ekkert að moka því umsjónarmaðurinn sá um það allt saman. Hann hóaði saman liði og mokstursvélum og þeir mokuðu svo vel bílaplanið hérna fyrir utan að það var eins og ekkert hefði snjóað, þ.e. ef maður leit fram hjá snjóhlassinu sem hlóðst upp í garðinum. Við erum ekki enn farin að geta opnað garðhurðina okkar en sem betur fer fundum við snjóþotuna hennar Ýrar sem leyndist þar undir. Þeir voru að alla helgina, meira að segja aðfaranótt sunnudagsins.
Bandaríkjamenn taka snjótímann MJÖG alvarlega (eins og svo margt annað) og það var lýst yfir "State emergency" og skólum var lokað í þrjá daga á eftir. Inni í Boston var skólum meira að segja lokað alla vikuna á eftir. Ég get ekki ímyndað mér að þetta hefði gerst á Íslandi. Snjóstormurinn varði bara yfir helgina og svo var komið þetta fína veður á mánudeginum með allt á kafi.
Ég fór t.d. út í apótek um kvöldmatarleyti á laugardeginum, eitthvað sem Bandaríkjamenn hefðu greinilega aldrei gert því það var varla nokkur á ferli, einn og einn bíll að drífa sig heim. Svo þegar ég kom úr apótekinu og var að fara yfir aðal-götuna okkar þá leið mér eins og bærinn hefði verið hertekinn því ég mætti fjórum til fimm RISA stórum bílum (voru eins og skriðdrekar) með enn stærri skóflur fremst. Þessir bílar voru sem sagt að fara að hreinsa bæinn.
B.kv. Edda.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home