Komin aftur heim.
Jæja við erum komin aftur heim til Arlington. Alltaf gott að koma heim, þó svo það sé örlítið kaldara hér en í Californiu!!! Þetta var ágætis ferð, en því miður fengum við ekkert hús, svona er þetta. Eftir að hafa keyrt um á milli húsa alla þessa daga þá ákváðum við að enda ferðina með því að gera e-ð skemmtilegt fyrir stelpurnar. Svo við fórum í picknic í mjög fallegum garði og fórum í dýragarðinn í San Francisco. Ýr fékk lánaða litlu digitalmyndavélina okkar í ferðinni og hún var í því að taka myndir af öllu, fannst það MJÖG skemmtilegt og tók það mjög alvarlega, enda tók hún næstum 1000 myndir (ég er ekki að ýkja).
Ég vil óska Hafdísi vinkonu minni innilega til hamingju með að komast inn í ljósmóðurnámið á Íslandi, alveg frábært hjá þér. Vonandi gengur þér vel.
Það var skautadagur hjá skólanum hennar Ýrar núna í dag. Við fórum öll og tókum vinkonu hennar Ýrar með, voða gaman. Það er alltaf jafn gaman á skautum og Ýr er orðin voða klár. En undir lokin rétt þegar ég var að reyna að ná stelpunum af svellinu þá dettur mín, alveg killiflöt :) Edda smart. Svo nú er ég haltrandi út um allt því ég rak hnéð svo rosalega í svellið. Alltaf jafn heppin.
Smá þakkir að lokum:
Takk afi Hafsteinn (í Viðjugerðinu) kærlega fyrir páskaeggin, þau voru vel þegin hér á páskunum. Takk kærlega amma Didda fyrir fallegu bangsanælurnar sem þú sendir og kortið, Ýr fór með annan þeirra á barminum í skólann daginn eftir. Takk líka amma Edda fyrir fallegu límmiðana sem þú sendir stelpunum um daginn og fallegu "bindis". Takk amma Brynja og afi Hafsteinn (Mýrarsel) fyrir andrésinn og bréfin. Við eigum svo góða að, við erum alltaf að fá einhvern glaðning.
Ég kveð núna, er að fara að sofa, Edda.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home