Californiuferð
Jæja núna erum við komin til Californiu í smá heimsókn, nánar tiltekið að leita okkur að húsnæði. Það má alveg segja að það sé BARIST um húsnæði hérna, alveg ótrúlegt. Ég hef aldrei upplifað þetta áður, það eru ca. 5 - 10 manns um hvert húsnæði, þá er ég að tala um þau húsnæði sem eru í ágætis ástandi, hin húsnæðin vill maður ekkert búa í. Þó að það sé rigning hérna þá væri ég alveg til í að vera alkomin hingað veðurlega séð því það er snjókoma í Boston, og vorið á leiðinni um þar næstu helgi. En þó að það sé rigning hérna þá er ca. 18 stiga hiti e-ð annað en 0 gráðurnar í Boston.
Við erum hérna á ágætis hóteli í Sunnyvale og keyrum svo út um allt til að skoða húsnæði, ekki beint skemmtilegt, sérstaklega með tvö börn, en þær eru samt búnar að vera ótrúlega góðar.
Það er þó nokkuð af Íslendingum hérna og erum við þegar búin að fara í 2 heimboð á þessum stutta tíma sem við höfum verið hérna. Annað til hjóna sem voru með Gumma í verkfræðinni og hitt til fólks sem við kynntumst fyrir nokkrum dögum í gegnum ameríska konu sem býr hérna. Ótrúlegt en satt þá er ég að fara í saumó á föstudagskvöldið með nokkrum íslenskum stelpum sem búa hérna. Ég hlakka mikið til að hitta þær.
Ég set hérna nokkrar myndir frá því á róló í gær og þegar við vorum að borða. Nokkrar líka af Elísabetu beigluaðdáanda, hún sem sagt elskar beiglur og smurost, aðallega kannski smurostinn því hún sleikir hann alltaf af með miklum tilþrifum.
Ég ætla að hætta núna, þurfum að fara að koma okkur út. Gleðilega páska allir saman.

1 Comments:
Hæ hó
Gangi ykkur vel í íbúðarleitinni og gleðilega páska:-)
Post a Comment
<< Home