Wednesday, March 09, 2005

Sædýrasafnið

Við fórum um daginn í sædýrasafnið. Ég skil ekki alveg af hverju við höfum ekki farið þangað fyrr, það var rosalega gaman, mjög skemmtilegt safn. Eitt fiskabúrið var RISASTÓR súla sem náði upp þrjár hæðir með alls konar fiskum, allt frá hákörlum niður í gullfiska, auk nokkurra furðuvera. Þarna í kerinu voru líka skjaldbökur af öllum stærðum og gerðum. Okkur öllum fannst þetta rosa flott fiskabúr og gaman að sjá allar þessar tegundir af dýrum saman komin synda hring eftir hring. Elísabet stóð og horfði á alla þessa fiska alveg furðu lostin. Svo syndir ein risaskjaldbaka fram hjá og það var eins og hún hefði komið auga á Elísabetu, því hún var alltaf að synda aftur og aftur fram hjá henni og stoppa fyrir framan hana, ferlega fyndið. Ég setti nokkrar myndir af því hér inn á heimasíðuna.
Ýr var í viku vetrarfríi í lok febrúar, svo við skráðum hana á námskeið með vinkonu sinni í Kidstock, sem er leiklistarnámskeið fyrir krakka. Í lok vikunnar var okkur svo boðið á sýningu sem þau voru með sem hét Hawaiian Horror Cruise. Þetta var ofsa skemmtilegur söngleikur, þar sem krakkarnir dönsuðu og sungu. Ýrar hlutverk var Mrs. Pizza. Ég setti líka nokkrar myndir af þessu inn á heimasíðuna.
En bara smá uppdate héðan á veðrinu. Það snjóaði svo mikið hér í gærkvöldi að ég var ekki alveg viss um að ég kæmist heim úr leikfiminni minni. Ég hafði farið á bílnum og þurfti sem betur fer ekki að keyra langt til að komast heim því ég sá eiginlega ekkert út því snjórinn sem lenti á rúðunni fraus strax. Það var svo kalt og mikill skafrenningur. Ferlegt alveg að það sé enn allt á kafi í snjó hérna og það er kominn mars. Við búum sem sagt í snjólandi núna og hitinn er -15°C, gaman gaman. Það á meira að segja að snjóa meira um næstu helgi.

Snjókveðjur til ykkar allra, Edda.

1 Comments:

Blogger Sigríður said...

Gaman að sjá að þú ert farin að skrifa aftur. Ég var um það bil að fara að gefast upp á þér ;-) En svona þar sem þú varst að tala um allan þennan snjó þá var mér litið út um gluggann hérna í skólastofunni hjá mér og viti menn, það er farið að snjóa!!! Það er nú orðið langt síðan það gerðist hérna!!

5:42 AM  

Post a Comment

<< Home