Túristar
Long time no hear allir saman. Ég vil byrja á því að óska Hrund systur minni innilega til hamingju með daginn þann 30. apr. og Ingu Rósu vinkonu minni innilega til hamingju með 30 ára afmælið um daginn. Einnig vil ég óska Auði vinkonu minni innilega til hamingju með læknatitilinn og útskriftina. Knús og kossar til ykkar allra.
Við erum búin að vera að bralla ýmislegt. Pabbi kom í heimsókn til okkar í þar-síðustu viku og var hjá okkur í 10 daga. Það var ofsalega gaman að fá hann í heimsókn og við gerðum alveg ferlega margt saman. Það var eins og hann hefði komið með góða veðrið með sér því veðrið var meira og minna frábært á meðan hann var hér, einn daginn fór hitinn meira að segja upp í 30°C (þá ákváðum við reyndar að halda okkur heima vegna hita og mollu). Við fórum í Boston Duck Tours sem er nokkuð sem allir verða að prófa sem koma til Boston. Þetta er svona sightseeing tour þar sem við keyrum með guide um Boston og faratækið endar á því að sigla á Charles River. Það fór meira að segja svo að pabbi og Ýr voru með þeim fáu útvöldu í hópnum sem fengu að sigla bílnum á ánni. Þetta er sem sagt bátar/bílar sem voru notaðir í seinni heimstyrjöldinni við innrásina í Normandí og má ég nefna að allir voru þeir byggðir af konum :)
Annars fórum við með pabba líka í garðana inni í Boston, Boston Common og Boston Public og röltum þar um, sáum m.a. Swan Boats. Fórum í Paitriot´s Day Parade þar sem pabbi fékk amerískts þjóðarstolt beint í æð. Við fórum einnig niður á Cape Cod þar sem gengum í sandinum niðri við sjóinn og tíndum skeljar. Um kvöldið borðuðum við svo á breskum pöbb sem við fundum þar, ég fékk mér meira að segja "fish and chips", mjög gott. Fyrsta daginn hans pabba var okkur boðið til Rockport þar sem við eigum góða vini. Við eyddum deginum þar og gengum um þennan fallega bæ sem er svo einkennandi fyrir New England og borðuðum svo frábæran kvöldmat heima hjá fólkinu.
Við eyddum svo síðasta heila deginum í því að rölta um Faneuil Hall Marketplace sem er mjög skemmtilegur útimarkaður, með litlum búðum og veitingastöðum og er einnig mjög sögufrægur staður, sem sagt einn af aðal túristastöðunum inni í Boston. Við röltum svo aðeins inn í North End sem er flokkað sem ítalska hverfið í Boston. Við enduðum svo daginn á því að borða á Union Oyster House, sem test vera einn elsti veitingastaður í Ameríku. Þennan stað fór John F. Kennedy oft á þegar hann var á lífi og við vorum meira segja svo fræg að sitja í básnum hans, föttuðum það reyndar ekki fyrr eftir 30 mín. setu þar :)
Svo það má segja að ég sé orðin svolítið meira Boston-vædd eftir allar þessar túristaferðir síðustu daga.
Í gærkvöldi vorum við svo með vinafólk okkar í mat, spiluðum og kjöftuðum fram eftir nóttu, rosalega gaman. Þau heita Maggi og Nanna og búa hérna með börnunum sínum tveimur.
Annars erum við að fara að flytja til Californiu í júní og hlökkum við mikið til þó það verði erfitt að kveðja það líf sem við þekkjum hérna. Erfitt að standa aftur í því að kveðja vini og svol. En þetta verður samt bara ævintýri eins og þessi ár hér í Boston hafa verið. Svo endilega komið og heimsækið okkur í Californiu ef þið getið, hlökkum til að sjá ykkur þar í sólinni.
Að lokum vil ég óska Herdísi vinkonu minni innilega til hamingju með óléttuna, gangi þér vel Herdís mín.
Hlakka til að heyra í ykkur öllum og endilega kíkið á myndirnar hér til hliðar, sumarkveðjur Edda.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home