Vorferð, afmæli ofl.
Aftur læt ég of langt líða milli skrifa, ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja. Berglind mín og Halldóra mín innilega til hamingju með afmælið um daginn, vonandi áttuð þið góðan dag.
Annars héldum við upp á afmælið hennar Ýrar um daginn. Já ég veit að hún á ekki afmæli strax en við verðum flutt þá svo við ákváðum að halda upp á það núna með vinum hennar. Við héldum það á stað sem heitir Kidstock, sem er staðurinn sem Ýr er í leiklist, mjög skemmtilegur staður. Hér úti þykir það mjög eðlilegt að halda upp á afmælin á hinum ýmsu stöðum eins og Kidstock eða þar sem börnin eru í tómstundum. Afmælin sem eru í heimahúsum eru yfirleitt með eitthvert þema og oft t.d. trúður eða svol. skemmtikraftar fengnir í afmælin. Svona er USA!!!
En þetta var alveg frábært afmæli, rosa skemmtilegt og vel heppnað. Á meðan beðið var eftir að allar stelpurnar mættu þá voru þær að teikna á risastóran afmælisborða, sem Ýr fékk svo að taka með heim. Næst var leikritið, sem þær ætluðu að leika, undirbúið, nokkrar æfingar teknar og búningar valdir. Þar sem Ýr var afmælisbarnið þá mátti hún ákveða í grófum dráttum um hvað leikritið var en svo voru þær allar saman í því að semja leikritið og velja hvaða hlutverk þær léku, þemað var "Enchanted Forest". Þar sem Ýr er svo mikil hestastelpa þá valdi hún að vera hestur, eða einhyrningur. Næst var svo farið í það leika leikritið og var það tekið upp á spólu sem við svo fengum að eiga. Þetta var mjög skemmtilegt leikrit um einhyrning sem átti afmæli og allir vinir hans (hennar) héldu óvænta afmælisveislu fyrir hann. Næst voru svo pakkarnir teknir upp og afmæliskakan borðuð. Það sem mér fannst eiginlega best við þetta, fyrir utan það hvað allt var skemmtilegt og heppnaðist vel, þá var það að ég þurfti ekki að gera neitt nema mæta með afmælisbarnið :) Kidstock sá um allt annað. Þið getið séð myndir í myndaalbúminu.
Við fórum svo á skólasýningu í skólanum hennar Ýrar um daginn, rosalega gaman. Allur 1st Grade söng 3 lög uppi á sviði. Eitt af lögunum var "Yellow Submarine", þar sem tveir krakkar löbbuðu um sviðið með gulan pappakafbát á meðan hin öll sungu, mjög sniðugt. Síðan var myndasýning eftir krakkana í kjallara skólans.
Síðasti skátadagurinn hennar Ýrar var í byrjun maí. Við fórum í gönguferð í mjög fallegum skógi í hér Arlington og svo var farið í leiki og borðað nesti. Ofsa skemmtileg ferð.
Elísabet er orðin svo stór, en hún heldur samt að hún sé eldri en hún er. Við ætluðum að reyna að fá hana til að byrja að nota kopp fyrir stuttu, bara prófa, en mín vildi nú ekki sjá hann. Þar sem Ýr stóra systir hennar notar
ekki kopp þá notar hún ekki kopp heldur, svo núna af og til situr hún á barnasessu á klósettinu hæst ánægð, ferlega fyndið (ég setti eina mynd af því í albúmið). Annars er hún farin að tala svo mikið og skilja svo mikið, hún er líka orðin ansi stríðin, mjög mikill prakkari. Það er alveg frábært að heyra hana herma eftir öllum dýrunum, kisa segir til dæmis "jáááááá". Svo ef hún sér hund úti á götu þá fer hún að gelta á fullu :)
Núna er Gummi loksins búinn í prófunum og bara skólanum almennt, jibbí. Skrýtið hvað tíminn líður hratt, allt í einu þessi tvö ár liðin. Við erum enn að reyna að venjast því að hafa svona mikinn tíma saman, reynum að gera hluti saman sem við höfðum ekki tíma fyrir áður.
Í dag fórum við á bókamarkað hér í næsta bæ við okkur. Frábær markaður, með alveg ótrúlega mikið af bókum, við vorum þarna í næstum 3 klukkutíma. Við fengum öll bók, auðvitað :)
Foreldrar Gumma koma um næstu helgi og verða hjá okkur í viku, við hlökkum mikið til að fá þau, höfum ekki séð þau síðan um jólin. Þau verða yfir útskriftina hans Gumma sem er í næstu viku.
Ég er að fara til Hildar í NY um næstu helgi ef veður leyfir, það er mikill stormur hérna núna, ekki mikið vorveður. En vonandi kemst ég til Hildar, ég ætla bara ein svo það ætti að vera gaman hjá okkur vinkonunum.
En nú ætla ég að sofa. Knús til ykkar allra, Edda.

1 Comments:
Til hamingju með Gumma þinn! Bið kærlega að heilsa Hildi, verð með ykkur í anda í borginni sem aldrei sefur:-)
Post a Comment
<< Home