Nýkomin til Kaliforníu
Jæja allir saman, nú erum við loksins komin í húsið okkar í Kaliforniu. Við búum við götu sem heitir í raun Bananagata. Bærinn okkar er alveg frábær, frekar lítill enn fallegur bær og mjög vel staðsettur. Frekar stutt á ströndina og líka til San Francisco. Við erum ekki alveg vön því að það sé sól alla daga, en maður venst því fljótt.
Annars er allt gott að frétta af okkur hér í Kaliforníu. Við erum búin að vera hérna í rúmar tvær vikur og mér finnst oft eins og við séum að fara að pakka í töskurnar okkar aftur og fljúga til Boston :). Á þessum tveimur vikum hérna höfum við verið að koma okkur fyrir og kynnast svæðinu. Við keyrðum líka í Disneyland til að halda upp á afmæli Ýrar og líka bara til að gera e-ð skemmtilegt fyrir stelpurnar, vorum öll að mygla inni á hóteli. Ég veit ekki hvor skemmti sér betur ég eða stelpurnar. Þegar við snérum aftur fengum við loksins húsið, sama dag reyndar, og einnig dótið okkar allt. Við fengum smá sjokk varðandi dótið okkar því það var farið frekar illa með ýmsa hluti hjá okkur. Ekki mjög skemmtilegt en við erum að reyna að vinna í því að fá það bætt, sjáum hvernig það gengur!!!
Fyrsta kvöldið okkar hér í húsinu var á föstudagskvöldið síðasta. Við vorum að fara að baða allan mannskapinn seint um kvöldið og ég fór í það að þrífa aðeins baðkarið. Þegar ég ætlaði svo að fara að skrúfa fyrir vatnið þá gekk það ekkert og vatnið rann í tvo tíma í viðbót eða þar til við náðum að fá mann hingað til að skrúfa fyrir vatnið. Við fengum svo pípara daginn eftir sem reddaði málunum þannig að við vorum ekki með sturtuna en við vorum með vatn á öðrum stöðum, hjúkk. Hann kom svo aftur á þriðjudaginn (í gær) með varahluti og lagaði sturtuna, svo nú erum við ekki lengur óhreina fjölskyldan. Við fórum svo og keyptum okkur þvottavél og þurrkara á laugardaginn en þegar kom að því að tengja þurrkarann komumst við að því að við vorum bara með tengi fyrir gasþurrkara en við keyptum rafmagnsþurrkara!!! Í fyrramálið á svo rafvirki að koma hingað og ath. hvað hægt er að gera í þessu. Svo þetta hefur ekki gengið áfallalaust fyrir sig en við erum svo ánægð með nýja heimilið okkar að við látum þetta allt ekki skemma fyrir okkur :)
Harpa og Sigga Sig. vonandi áttuð þið báðar frábæran afmælisdag.
Ég ætla að kveðja í bili, heyrumst fljótlega, kv. Edda og co.

1 Comments:
Hæ hæ kæra fjölskylda
Gott að þið eruð ánægð með nýju íbúðina og nýja staðinn. Héðan er allt fínt að frétta, rigning eins og er... En það styttist óðum í Portúgal hjá okkur. Förum þann 27.júlí.
Kveðja Herdís.
Post a Comment
<< Home