Thursday, June 23, 2005

Útskrift og flutningar með meiru.

Jæja allir saman, nú erum við komin til Californiu. Okkur finnst samt ekki alveg eins og við séum komin til að vera því við búum í augnabkilinu á hóteli og erum á bílaleigubíl. En við ættum að geta komist í endanlegt húsnæði um helgina eða í næstu viku, krossum bara fingur og vonum :)

Annars er búið að vera mikið að gera hjá okkur. Gummi útskrifaðist þann 3. júní síðastliðinn við mikla athöfn frá MIT. Við mæðgurnar og foreldrar Gumma fórum á útskriftina. Það var ofsa gaman, mikil viðhöfn. Bara nokkrurum dögum áður þá hafði rignt dag eftir dag, en á útskriftardaginn þá kom alveg frábært veður. Svo gott veður að fjölskyldan hans Brynjars sem var líka að útskrifast úr MIT gat ekki setið allan tímann, ekki alveg veður fyrir Íslendinga. Um kvöldið fórum við svo út að borða öll saman. Foreldrar hans Gumma voru hjá okkur í viku yfir útskriftina. Það var rosa gaman að hafa þau, takk fyrir komuna. Þau ætla svo að koma í lok okt. til okkar til Californiu, það verður gaman.

Daginn eftir útskriftina var sumarhátíð í skólanum hennar Ýrar, þetta er svona árlegur viðburður. Það var alveg frábært veður (eiginlega of heitt). Þar voru ýmis tæki fyrir krakkana að leika sér í, hoppukastali, litlir hestar og ýmislegt fleira. Avo var fjáröflun á staðnum þar sem selt var notað dót og kökur og svol. Ofsa gaman. Ýr vann köku í svokölluðu "cakewalk", og þetta var hvorki meira né minna en Red Sox kaka (hafnarboltalið Bostonbúa). Elísabet og Ýr völdu sér svo smá dót á dótasölunni og Elísabet valdi sér rauðan stól sem sést á myndunum og Ýr talstöðvar. Þetta var ofsa gaman, Ýr fannst sérstaklega gaman að fara á hestbak.

Þessa sömu helgi vorum við svo með útskriftar-kveðjuhóf fyrir íslensku vini okkar á Boston svæðinu. Sá dagur var einstaklega heitur því það var ekki aðeins 30°C hiti heldur líka þessi raki sem er MJÖG einkennandi fyrir austuströndina og fyrir vikið verður helmingi heitara. En öll lifðum við þetta nú af og það var alveg frábært hvað það var gaman og hvað margir komu. Til að kæla krakkana þá vorum við með litla plast sundlaug fyrir þau. En eina barnið sem virkilega vildi vera í lauginni var hún Elísabet mín, hún er alveg eins og fiskur þegar kemur að vatni.

Helgina áður en við fórum þá vorum við með 2 sleepover fyrir Ýr. Á föstudeginum fengum við íslenska vini hennar í heimsókn og á laugardeginu fengum við vinkonur hennar úr skólanum í heimsókn, 4 krakkar hvort kvöld fyrir sig. Eins og þið getið ímyndað ykkur þá var þetta mjög áhugaverð helgi og við vorum mjög þreytt eftir hana. En þetta var ofsalega gaman og þið getið rétt ímyndað ykkur hversu gaman þetta var fyrir Ýr mína. Það var sem sagt farið að sofa seint um kvöld og vaknað upp um klukkan 6 um morgun. Gummi tók föstudagsvaktina og ég tók laugardagsvaktina. En þarna gat Ýr kvatt flesta vini sína.

Á fimmtudaginn síðasta komu svo flutningamenn heim til okkar að pakka öllu dótinu okkar. Þetta er mjög algengt hérna úti og einstaklega þægilegt. Þeir komu inn, byrjuðu að pakka og kláruðu á 3 1/2 tímum, geri aðrir betur. Okkur Gumma varð hugsað til þess þegar við vorum að pakka á Íslandi fyrir 2 árum, það tók okkur AÐEINS lengri tíma að pakka þá.
Daginn eftir (á föstudeginum) þá kom annað fólk og tók allt dótið okkar og setti það í trukk og þar með hóf dótið okkar ferð sína til Californiu. Bíllinn okkar hafði farið á þriðudeginu áður. Mjög skrýtin tilfinning að vera að gera þetta aftur. Tíminn hefur verið ótrúlega fljótur að líða. En það furðulegasta við þetta allt saman er að þetta voru bara 2 ár, því við erum búin að gera svo margt og kynnast svo mörgum að þetta virðist hafa verið MUN lengri tími.


Yfir helgina gistum við svo á MIT hótelinu, mjög viðeigandi að dvelja þar síðustu dagana okkar í Boston. Þetta er mjög skemmtilegt hótel sem sýnir nokkrar uppfinningar frá MIT nemum, þjónustan þar er alveg frábær og ég mæli með því hóteli ef einhver er á leið til Boston (er reyndar staðsett í Cambridge). Á sunnudagskvöldinu síðasta lentum við svo hér á San Jose flugvelli í Californiu. Við búum svo núna á íbúðarhóteli sem Google útvegaði okkur, ágætis hótel.

Ég læt heyra í mér fljótlega þegar við höfum komið okkur betur fyrir.

Að lokum vil ég óska Herdísi minni innilega til hamingju með afmælið og líka Halla og Þórunni, til hamingju með afmælið öll saman. Ég vil líka óska Diddu, ömmu Gumma, innilega til hamingju með 90 ára afmælið.

Bestu kveðjur frá Californiu, Edda og co.

ps. góða skemmtun á Duran Duran þið sem ætlið að fara, takið eitt tjútt fyrir mig.

1 Comments:

Blogger herdist said...

Hæ hæ

Til hamingju með Gumma, og til hamingju með nýja heimilið.

Kveðja Herdís

p.s. ég skal skemmta mér fyrir þig líka á Duran Duran....

12:33 PM  

Post a Comment

<< Home