Gleymdi einu...
Ég gleymdi alveg að segja ykkur frá því að Ýr missti sína 3ju tönn í gær og tannálfurinn kom síðustu nótt :)
Ég fékk líka mína einu sönnu augnsýkingu (eins og svo oft áður) nánast um leið og ég kom til Californiu, ferlegt alveg. Ég var með alveg fjórfalt, rautt augnlok, svo ég endaði á því að fara upp á spítala í gær og komst svo að hjá augnsérfræðingi í dag, þar sem ég var sett á sýklalyf, gaman, gaman.
Ég gleymdi líka að segja ykkur frá dekurdeginum mínum áður en ég fór frá Boston. Ég fór með íslenskum vinkonum mínum í manicure og pedicure. Eftir það fórum við og fengum okkur kokteil, fórum í smá búðarrölt og enduðum svo á því að fara út að borða og fá okkur meiri kokteila. Ferlega gaman að kveðja vinkonur mínar svona, auk þess hef ég aldrei áður farið í mani og pedi áður og er núna með voða fínar neglur á tám og fingrum.
Læt heyra í mér aftur fljótlega, kv. Edda.

1 Comments:
Hæ hæ Edda mín
Það er greinilega margt og skemmtilegt að gerast hjá ykkur úti í útlandinu. Rosalega eru margir íslendingar í kringum ykkur á gamla staðnum. En hvernig er þetta á þeim nýja eruð þið ánægð með húsið og umhverfið?
Hlakka til að heyra frekari fréttir.
Herdís bumbulína.
Post a Comment
<< Home