Hola amigos.
Já hún Ýr mín er að fara að læra spænsku og ég þarf að hjálpa henni að ná hinum krökkunum í bekknum fyrir september byrjun því þau byrjuðu öll í fyrra að læra spænsku. Svo ég segi bara við ykkur hola amigos.
Við áttum frábæra síðustu helgi. Á laugardeginum náðum við í Aysu, konu Nonna frænda, í San Francisco, hún var að vinna í Sacramento í 3 vikur. Frábært að hitta hana aftur, það er svo langt síðan við hittum hana síðast. Við keyrðum öll í strandarbæ rétt hjá San Francisco sem heitir Half Moon Bay. Fengum okkur hádegismat þar og eyddum deginum á ströndinni í mjög fínu veðri. Í lok dagsins keyrðum við hana aftur til Sacramento og borðuðum þar með henni kvöldmat.
Á sunnudeginum fengum við svo Íslendinga, sem búa hér, í heimsókn til okkar í garðinn og má eiginlega segja að þau voru að vígja garðinn okkar því við höfum ekki haft grillpartý fyrr en núna. Svo garðurinn var fullur af Íslendingum á sunnudeginum og það hefur örugglega verið mjög fyndið að vera nágranni okkar það kvöldið og hlusta á þetta furðulega tungumál okkar :)
Þessa helgina höfum við svo verið heima því hún Elísabet mín er með hita greyið. Nema það að við Ýr fórum í bíó í dag á "Charlie and the Chocolate Factory". Við vorum búnar að gera samning um það að fara á myndina þegar hún væri búin með bókina, sem hún kláraði á föstudaginn. Okkur fannst þetta voða skemmtileg mynd.
Ég vil óska stóra frænda mínum honum Hafsteini Atla innilega til hamingju með daginn í dag vonandi var gaman að borða á Ítalíu í kvöld. Kærar afmæliskveðjur líka til Nönnu vinkonu minnar.
Bæ allir.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home