Sumarhiti
Sæl öll sömul.
Það er búin að vera hitabylgja hérna undanfarna daga allt að 37°C og sól svo það er eiginlega búið að vera óverandi úti, a.m.k. yfir miðbik dagsins. Svo við mæðgurnar fórum því í gær út í búð og keyptum okkur vatnsdót til að hafa hér úti í garðinum, m.a. mjög skemmtilegan uppblásinn bolta sem sprautar vatni út um allt. Ekki veitir af til að kæla okkur hér. Annars ætlum við að reyna að fara í picnic á morgun hjá Google, þ.e. ef það er ekki of heitt.
Við mæðgurnar keyrðum svo norður fyrir San Francisco í dag til að ná í dót fyrir húsið sem var nú kannski ekki í frásögu færandi nema vegna þess að ég fékk að sjá Golden Gate og við meira að segja keyrðum yfir hana. Svo keyrðum við niður hraðbraut 280 sem er ein fallegasta hraðbraut sem ég hef keyrt, með fallegar grænar hlíðar allt í kring. Því miður gat ég ekki stoppað og tekið myndir fyrir ykkur, en þið verðið þá bara að koma í heimsókn og sjá :)
Annars er allt fínt að frétta af okkur. Gummi er byrjaður að vinna og líkar bara vel þó svo hann hafi bara unnið í 3 daga. ið mæðgurnar erum enn að reyna að fóta okkur hérna. Greyið Ýr mín er bara heima með mér og Elísabetu og finnst það sennilega ekkert voðalega gaman, enginn til að leika við almennilega. En hún er samt svo góð og meðfærileg, ferlega dugleg að gera gott úr hlutunum. Ég ætla að reyna að finna eitthvað fyrir hana að gera að einhvern til að leika við, það er enn tæpir 2 mánuðir í skólann hjá henni, sjáum til hvað gerist. Hún Elísabet er svo fyndin, svolítil klaufi stundum en á frábæran hátt. Ætlaði t.d. að setjast í sófann hjá mér um daginn þar sem ég lá, en endaði eiginlega á því að setjast á andlitið á mér. Svo er hún farin að mynda setningar, en þær eru nú samt mis-skiljanlegar, en þær koma bæði á ensku og íslensku, ætli hún læri ekki enskuna af Ýr. Þegar hún uppgötvar að hún hafi sagt einhver orð sem við skiljum þá verður hún voða stolt og segir orðin aftur og aftur og hlær hrossahlátri. Þegar við vorum í Disney þá lærði hún orðið "sorry" nema hvað hún segir það "sovvvví", ótrúlega fyndið. Svo er Mína Mús og Dora the Explorer í miklu uppáhaldi hjá henni og hún segir "Mímú" og "Dóa". Svo þegar Ýr er e-ð að gera sem henni mislíkar þá segir hún hátt og snjallt "NOOOOO" eða hún kemur hlaupandi til okkar, bablar einhver helling sem er að mestu óskiljanlegur nema inn á milli bablsins heyrir maður "Ýr", sem þýðir að hún er e-ð að klaga Ýr. Þetta er svo fyndið og svo erfitt að vera alvarlegur við hana, því hún stendur þarna og er virkilega að kvarta alveg á fullu.
Ég bið að heilsa ykkur, Edda.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home