Saturday, August 06, 2005

Íslenskar vörur í útlöndum!!!

Ferlega skrýtið hvernig manni finnst alltaf gott að fá íslenskan mat eða nammi, a.m.k. finnst mér og mínum það eftir að við fluttum frá Íslandi. Um daginn hafði ég verið að borða íslenskar SS-pulsur með íslensku sinnepi og steiktum lauk (sem kom frá Íslandi en er samt ekki íslenskur). Ég drakk svo íslenskt vatn með, já þeir selja íslenskt vatn hér úti í apóteki. Eftir á fékk ég mér svo sænskar kókosbollur úr IKEA. Skrýtinn dagur.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home