Sunday, September 25, 2005

Nýtt frá mér

Hæ allir saman.

Smá fréttir af mér. Ég er sest aftur á skólabekk!!! Já, Edda komin aftur í skóla. En kannski ekki það nám sem þið bjuggust við að ég færi í. Ég skráði mig í listaháskóla í San Francisco í BA nám í ljósmyndun. Þetta er mjög góður skóli og mjög klárir kennarar sem ég er með. Einn kennarinn minn tekur m.a. allar myndir fyrir EPSON prentarana, ekkert smá verkefni. Þetta nám hefur komið mér mjög á óvart og mér finnst rosa gaman. Ég sem sagt keyri 2-4 sinnum í viku upp til San Francisco. Það kemur í ljós hvað úr þessu verður, ætla að njóta þess á meðan þetta er gaman. Á meðan ég er í skólanum þá er Elísabet hjá dagmömmu sem er hérna í næstu götu, kemur sér mjög vel. Henni finnst voða gaman þar og kemur alltaf heim með hin ýmsu listaverk sem hún er að vinna að. Svo er alveg ótrúlegt hvað orðaforðinn hennar er orðinn mikill, lærir nýtt orð á hverjum degi nánast, hvort sem það er á ensku eða íslensku.





Bæjó í bili, knús Edda.

6 Comments:

Blogger Begga said...

Frábært hjá þér Edda. Þú lofar góðu af myndunum að dæma á síðunni. Hvenær kemur þú svo heim að taka barnamyndir fyrir okkur hér á klakanum. Endilega bókaðu mig :-) Þú mátt líka vera duglegri við að blogga hmmm. Ert ekki alveg að standa þig í stykkinu þar.
Knúsaðu alla frá mér

4:24 AM  
Blogger Hafdís said...

hæ gaman að heyra af nýja náminu, rosalega flottar myndir hjá þér;-)Það verður gaman að fylgjast með þessu!

3:34 PM  
Blogger herdist said...

Frábært hjá þér. Þetta væri ég sko alveg til í... Aldrei að vita hvað maður gerir í framtíðinni.
Frábærar myndir af stelpunum þínum, þú ert greinilega með næmt auga fyrir þessu, njóttu skólans og lífsins meðan gaman er:-)

8:06 AM  
Blogger Hrefna said...

hæ Edda, gott hjá þér að drífa þig í nám!! Við sitjum hér og okkur þætti gaman að fá lykilorð á myndasíðurnar og kíkja á ykkur.
Hrefna (Hans Geirs) og Ásdís (frænka þín)

12:07 PM  
Blogger Hrefna said...

og e-mailið er hrefnahrefna@yahoo.com eða asdisj@gmail.com :-)

12:09 PM  
Blogger Edda said...

Takk fyrir hrósið og hvatninguna stelpur mínar, mjög sætt af ykkur.
Annars komum við sennilega ekki til Íslands fyrr en næsta sumar, en samt aldrei að vita hvað maður gerir :)

1:30 AM  

Post a Comment

<< Home