Saturday, August 13, 2005

Hjólatúr


Við fórum öll í hjólatúr í dag. Við keyptum stól á hjólið fyrir Elísabetu svo hún sat á mínu hjóli. Þetta var voða gaman og Elísabetu fannst svo gaman að ég ætlaði ekki að ná henni af hjólinu þegar kom að því að fara inn. Ýr var mjög dugleg að hjóla en fannst þetta nú heldur löng hjólaferð hjá okkur :)

3 Comments:

Blogger herdist said...

Hæ hæ

Það er einmitt nýbúið að kaupa sæti aftan á hjólið hjá Stulla. Elsa Björg þeysist um með pabba sínum og vill helst ekki hætta að hjóla:-)

2:51 PM  
Blogger Edda said...

Auðvitað vill hún ekki stoppa, þetta er SVOOOO skemmtilegt :)

8:28 PM  
Blogger Begga said...

hæ hæ,
Frábærar myndir af bænum, við erum alveg byrjuð að skipuleggja ferðina og orðin enn staðfastari. Jólagjafirnar í ár verða gjafakort hjá Icelandair. Þannig þið eigið von á okkur næsta vor. Ég er svo spennt að ég er að deyja, eins og þetta sé bara á næsta leyti heheh.
Heyrumst fljótlega
Beggs

7:19 AM  

Post a Comment

<< Home