Hæ allir saman.
Ég er nú lélegi bloggarinn, hef ekki bloggað í mánuð núna. En loksins koma smá fréttir af okkur. Ég ætla að byrja á nýju orðunum hennar Elísabetar, maddaman er farin að tala næstum eins mikið ensku og íslensku. Meðal orða hjá henni er "doggí", more cookie", "more water" og svo söng hún fyrir mig byrjunina á A, B, C laginu áðan. Hún er svo fyndin.
Annars vil ég óska henni Hildi minni innilega til hamingju með áfangann, bara orðin doktor núna. Loksins búin með námið sitt. Ég hlakka til að fá hana hingað til Kaliforníu þó svo það verði talsvert langt á milli okkar ennþá.
Ýr byrjaði í skólanum sínum fyrir rúmri viku og finnst bara rosa gaman. Hún er þegar búin að eignast nokkrar vinkonur, m.a. ein sem er orðin eins og ein af fjölskyldunni, alveg frábær stelpa. Svo er svo fyndið hvað Elísabetu finnst þessi stelpa skemmtileg, hún elskar þegar hún fær að leika með þeim tveimur. Finnst hún vera orðin svo stór.
Við fengum vini í heimsókn núna fyrir tveimur vikum ca., þau Hjalta, Ernu og börn. Þau búa í Massachusetts þar sem við eyddum síðustu 2 árum. Það var mjög gaman að sjá þau aftur.
Takk kærlega fyrir allar kveðjurnar þegar Gummi átti afmæli, mjög sætt af ykkur. Vegna þess að hann varð svo gamall þá planaði ég óvænta ferð fyrir okkur. Á laugardeginum fyrir afmælið þá héldum við af stað eldsnemma um morguninn niður til Monterey og Carmel (1 - 1 1/2 tíma í burtu). Gummi vissi ekki af ferðinni svo þetta var óvænt ánægja. Við löbbuðum um og borðuðum hádegismat í Monterey Bay og tékkuðum okkur svo inn á hótelið okkar. Næst keyrðum við niður til Carmel (ca. 10 mín. sunnar). Þar var hann Clint Eastwood einu sinni bæjarstjóri :) Þar löbbuðum við um þennan fallega bæ og fórum niður á ströndina til að leika og horfðum á þegar sólin settist.
Fengum okkur síðan að borða þar á ágætis veitingastað. Síðan héldum við heim á hótel. Daginn eftir fórum við á frábært sædýrasafn í Monterey. Þetta var mjög skemmtileg helgi.

Herdís, til hamingju með strákinn þinn og góða skemmtun í Köben. Sigga mín vonandi skemmtir þú þér vel í Tennessee og Pittsburg.
Ég verð vonandi duglegri að skrifa núna á næstunni, lofa samt engu. En ég set inn nokkrar myndir á morgun.
Knús til ykkar allra í bili, Edda.

3 Comments:
Hæ hæ
Þetta er ekkert smá skemmtilegar lýsingar hjá þér. Virðist vera mjög gaman þarna hjá ykkur. Takk fyrir kveðjuna ég á örugglega eftir að njóta mín í Köben, en ætlaðir þú ekki að óska Nínu til hamingju með strákinn sinn, Árni Snær verður ekki 9ára fyrr enn 2.okt. Kannski er það bara bumbubúinn sem þú ert að spá í. Veit samt ekki kynið en gæti verið strákur þar.:-)
Kveðja Herdís.
Jú Herdís mín, sorry, ég var að hugsa um símanúmerið þitt, vissi að það var (a.m.k. einu sinni) afmælisdagurinn hans Árna Snæs og hugsaði 0210 OK það er núna :) svona er ég nú rugluð þessa dagana.
ekkert mál. Það fyndna er að ég fékk e-mail frá Herdísi í verslóklúbbnum um hvort ég gengi með strák:-)
Kannski er þetta bara fyrirboði um það en annars þakka ég kærlega fyrir afmæliskveðjuna hans Árna Snæs (bara fyrirfram)
Kveðja Herdís.
Post a Comment
<< Home