Friday, October 07, 2005

"Sit down"

Þetta eru nýjustu orðin hennar Elísabetar, "Sit down", ætli hún hafi ekki lært þetta á leikskólanum. Annars er hún mjög dugleg að tala bæði ensku og íslensku og er farin að tala talsvert í setningum. Hún veit að doggy er hundur á íslensku. Hún er líka farin að syngja og upphálds lögin hennar eru "Twinkle, twinkle little star" og "If your happy and you know it ...". Það er svo fyndið að hlusta á hana. Þegar við setjumst í bílinn þá er byrjað að kalla "Happy no-it, happy no-it" og þá er hún að biðja um lagið sitt. Ég fór að syngja um daginn í bílnum "Twinkle, twinkle ...", þá segir mín, "Neeeeiiii mamma, kinkul, kinkul", þannig að ég bar þetta ekki rétt fram greinilega, ferlega fyndið.

Söngfuglarnir biðja að heilsa.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home