Monday, October 17, 2005

Fieldtrip

Kúrsinn sem ég er í á föstudögum fór í "fieldtrip" á föstudaginn síðasta. Það var ofsalega gaman. Við hittum kennarann niðri við Half Moon Bay sem er strandbærinn sem ég talaði um í síðasta bloggi. Við fórum niður að strönd sem er 10 mín. suður af Half Moon Bay til að taka myndir. Fórum svo í síðbúinn hádegismat í þessum skemmtilega bæ. Eftir hádegismatinn var svo ferðin búin en þar sem ég var komin á staðinn þá ákvað ég að fara á aðra mjög skemmtilega strönd þarna rétt hjá til að taka fleiri myndir. Ég set inn myndir þaðan þegar ég hef farið í gegnum þær. Þetta var alveg frábær dagur í alla staði.

2 Comments:

Blogger Sigríður said...

Hlakka til að sjá myndirnar. Við verðum endilega að fara í þennan strandbæ þegar ég kem í heimsókn (tími óákveðinn en vonandi sem fyrst!!). Finnst hann soldið spennandi :p

1:41 AM  
Blogger Edda said...

Endilega komdu sem fyrst, hlakka til að sjá þig :)

Kv. Edda.

11:55 AM  

Post a Comment

<< Home