Sunday, October 16, 2005

Hvítvín og graskershátíð

Ég fékk einhverjar kvartanir um daginn yfir því að það væru engar nýjar myndir inni á síðunni okkar :) Ég reyni að bæta úr því núna hér til hliðar.
Annars er bara allt fínt að frétta af okkur, alltaf nóg að gera. Við mæðgurnar allar á fullu í skólunum okkar og Gummi í sinni vinnu.
Í dag fórum við á "Pumkin Festival" í strandbæ hér rétt hjá sem heitir Half Moon Bay. Þessi bær er mjög fyndinn, þetta er svona eldgamall, svolítið sjúskaður strandbær, svol. eins og maður sé dottinn inn í ameríska skrýtna bíómynd. Þetta var hátíð í tilefni af Halloween sem er í lok mánaðarins. Þar var hægt "tína" grasker, sem í raun lágu bara í hrúgum hér og þar á jörðinni. Þarna voru líka ýmis leiktæki og líka svokölluð "pony rides". Fyrst fór Ýr bara því við treystum ekki Elísabetu einni á hestinum og ég mátti ekki fara með henni. Á öðrum stað mátti ég svo labba með hestinum svo við ákváðum að prófa, þannig að í þetta skiptið fóru þær báðar á sinn hvorn hestinn. Ýr fannst þetta auðvitað alveg frábært, enda MIKIL hestastelpa, og Elísabet var svo fyndin, það var eins og hún hefði aldrei gert neitt annað en að vera á hestbaki, ekki vitund hrædd, hélt sér í hnakkinn og fór hring eftir hring á hestinum. Þetta var mjög skemmtilegt allt saman.
Fyrr um daginn höfðum við reyndar farið í brunch til íslensks vinafólks okkar sem búa á Stanford campus. Það var svo gott veður að við gátum setið úti í garði og borðað mjög góðan mat. Alltaf gaman að hitta skemmtilegt fólk og borða góðan mat.
Á laugardeginum eftir að ég hafði farið upp í skóla til að vinna myndirnar mínar þá rétt náði ég að hitta vinkonu mína í bíói. Við fórum á frábæra mynd sem heitir "In her Shoes", mæli eindregið með henni, vinkonur hópist saman á þessa mynd :) Eftir það fórum við út að borða á mjög góðan franskan veitingastað. Þar sátum við úti drukkum hvítvín og hlustuðum á spænska "live" tónlist. Mjög notarlegt. Ég er búin að vera svo upptekin síðustu vikurnar (og þá helgarnar meðtaldar) að mér fannst tími til kominn fyrir mig að slappa aðeins af, eins og þið heyrið að ég gerði þessa helgina :) Vonandi fáið þið ekki þá ranghugmynd í kollinn að líf mitt sé eintómt hvítvín og franskir veitingastaðir :)

Knús frá okkur hér, Edda.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home