Monday, December 19, 2005

Loksins blogg

Jæja loksins smá blogg frá mér, veit reyndar ekki hvort nokkur kíkir hér inn lengur. Ég veit, ég er búin að vera voða löt við að skrifa.
Ég kláraði skólann fyrir viku með þremur lokaverkefnum, frábært að vera komin í frí þó svo þetta hafi verið mjög skemmtileg önn. Námið þessa önnina gekk framar öllum vonum og ég fékk mjög góða dóma frá kennurunum mínum. Ég kannski pósta nokkrum myndum frá einhverju lokaverkefninu mínu, sjáum til ef ég nenni því í dag.

Annars erum við búin að reyna að drekka í okkur jólin á þessari viku. Við vorum sem betur fer búin með gjafainnkaupin, svo við þurftum ekkert að fara í innkaupastúss. Við settum upp tréð okkar og annað jólaskraut. Hér í USA setja allir upp skrautið sitt og tré strax eftir Thanksgiving, eða síðustu vikuna í nóv., og svo er allt tekið niður strax eftir áramót. Mjög skemmtileg hefð. Ýr var farin að kalla okkur "the Scrooge family" af því við vorum ekki búin að sreyta neitt :) Ferlega fyndið.

Það er búið að vera öðruvísi jólaskap hjá okkur í ár. Sennilega vegna þess að Gummi fær ekki langt jólafrí eins og í MIT, ég var í lokaverkefnisvinnu fram yfir miðjan des. og svo er heitara en við eigum að venjast :) Það er t.d. í dag 16°C, rigning og þoka. Aðeins heitara en í Boston, þar sem hitinn fer oft niður í -20°C með snjó og öllu tilheyrandi. Get nú ekki sagt að ég sakni þess. Það tekur sennilega bara smá tíma að venjast þessari veðráttu hérna.

Ég verð nú að segja að bærinn okkar er mjög skemmtilegur bær. Núna í des. var boðið upp á hina hefðbundnu jólaskrúðgöngu með alls konar uppáklæddu fólki og það var líka kveikt á jólatrénu í miðbænum. Svo var hægt að keyra keyra um þjóðgarðinn hérna í bænum okkar og þar var búið að setja upp þvílíka ljósasýningu. Fórum reyndar þangað í kvöld. Allir sem voru að keyra þarna um keyrðu á ca. 5 km hraða og hlustuðu á jólatónlist sem hægt var að stilla á í útvarpinu, sem var sérstaklega útvarpað af bænum okkar. Þetta var voða gaman og jólalegt. Ýr og Elísabet sátu í framsætinu hjá Gumma á meðan ég keyrði. Ekkert óeðlilegt við það, við sáum meira að segja einn mínívaninn með hliðarhurðarnar opnar meðan hann keyrði svo börnin sæju meira. Hér í bænum var líka hægt að fara í hestvagnaferð, mjög jólalegt allt saman. Svo eru jólaskreytingar hér um allan bæ, þvílíkur jólabær. Sum húsin eru reyndar skreytt það mikið að ég skil ekki hvernig íbúarnir geta sofið í öllum þessum ljósum :)

Ég fór með Ýr í bíó í dag á "The Cronicles of Narnia". Frábær ævintýramynd, ég mæli eindregið með henni. Ýr var svo spennt. Hún hafði lesið bókina fyrr í vetur og þess vegna var næsta skref að sjá myndina, gerðum þetta líka með "Charlie and the Chocolate Factory". Það byggist upp svo mikill metnaður í að klára bókina á undan því að sjá myndina, gaman að því.

Ég vil að lokum óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Takk fyrir allt gamalt og gott og vonandi sjáumst við hress á nýju ári. Það var svo mikið að gera hjá mér í skólanum að ég náði því miður ekki að senda nein jólakort í ár, svo þetta verður bara að duga. Kannski reyni ég að senda nýárskveðju, sjáum til.

Bestu kveðjur til ykkar allra, Edda og co.




2 Comments:

Blogger herdist said...

Hæ hæ Edda min.
Þetta eru frábærar myndir, þú ert greinilega alveg með þetta í þér:-)
Gaman að heyra hvernig jólin hjá ykkur eru í USA. Hér var mjög jólalegt í gær (þorláksmessu) jólasnjór yfir öllu (föl) en nú er búið að rigna og allur snjór farinn. Stulli og krakkarnir eru að keyra út pakka, og ég var að klára að skúra (Bríet sefur). En hvað er aftur e-mailið þitt ertu með g-mail? það er betra að senda myndir á það.
Jólakveðja Herdís.
Sendi jólakortin seint þetta árið þið fáið það örugglega ekki fyrr en milli jól og nýárs.

7:14 AM  
Blogger Edda said...

Takk Herdís mín fyrir hrósið.
Já ég trúi því að Þorláksmessa hafi verið hátíðleg, allir í jólaskapi, sá einmitt myndir þaðan á mbl.is. Ég sendi þér tölvupóst með netfanginu mínu þá getur þú bara reply-að á það.
Kysstu fjölskylduna þína frá mér, jólakveðjur frá okkur hérna, Edda og co.

2:31 PM  

Post a Comment

<< Home