Wednesday, January 04, 2006

Óveður og rafmagnsleysi

Jæja nú erum við búin að fá aftur rafmagnið, netið, símann og sjónvarpið. Það kom "óveður" hérna hjá okkur rétt eftir áramótin, reyndar kom það með nýja árinu. Þetta var nú kannski ekkert íslenskt óveður en þar sem allar rafmagnsnúrur eru ofan jarðar hérna og mun meira af trjám þá þarf ekki mikið til. Reyndar rigndi og rigndi, svo mikið að það voru flóð í nokkrum bæjum hér fyrir norðan okkur.

Rafmagnið fór hjá okkur á nýjársdag, en kom aftur sama dag (sem betur fer :) Margir hér í nágrenninu voru ekki eins heppnir, því þeir voru enn rafmagnslausir í gærkvöldi, þremur dögum seinna. Kapallinn hjá okkur fór líka á nýársdag, en í gegnum hann fáum við netið, sjónvarpið og símann. Í gærmorgun fengum við svo loksins aftur kapalinn okkar. Maður fær eiginlega innilokurnarkennd þegar ekkert samband er við umheiminn, a.m.k. ég :) Ótrúlegt hvað maður er háður rafmagni/tölvunni/sjónvarpi/síma.

Hér í hverfinu liggja tré og greinar hér um allt. Vegurinn sem ég tek í skólann til Ýrar var lokaður í gærmorgun því risagrein, á stærð við tré, hafði fallið á hann.
Núna í dag er svo 18°C og léttskýjað, maður sættir sig nú alveg við rigninguna þegar svona veður kemur í staðinn :)

Sjáumst, Edda.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home