Sunday, January 01, 2006

Áramótakveðjur

Hæ allir.

Við óskum ykkur gleðilegs árs og þökkum allt gamalt og gott.

Það er alltaf skrýtið að vera ekki í íslensku flugeldahafi um áramótin. En þessi áramót voru samt mjög skemmtileg þrátt fyrir flugeldaskort og ættingja- og vinaskort. Við byrjuðum á því að elda góðan kvöldmat hér heima. Strax eftir það þá fórum við til vinafólks okkar hérna í San Jose í partý. Við fengum þar léttar veitingar og spiluðum og spjölluðum. Þarna voru bæði börn og fullorðnir og allir skemmtu sér konunglega. Þarna bjó bekkjarsystir hennar Ýrar og svo var önnur bekkjarsystir í heimsókn. Um áramótin sjálf þá skáluðum við í kampavíni og brenndum blys sem íslenskir vinir höfðu gefið okkur. Ofsalega skemmtilegt kvöld. Mikið hlegið.

Fyrr um daginn fórum við í bókabúð sem er hérna rétt hjá. Bókabúðirnar hérna eru svo frábærar og það er svo gaman að fara þangað saman og skoða bækur. Meira að segja Elísabetu finnst þetta gaman. Í þessum búðum eru stór barnahorn þar sem hægt er að setjast niður og lesa og jafnvel hlusta stundum á sögur.

Síðastliðna nótt var óveður hérna. Það rigndi og rigndi og svo var líka hífandi rok. Það rigndi það mikið að það voru flóð í N-Kaliforníu. Það var reyndar ekki alveg eins slæmt hérna hjá okkur en samt fóru ýmsir hlutir á flug hérna í garðinum okkar og stór grein fyrir framan húsið brotnaði og datt meðfram bílnum okkar. Meira að segja datt heimasíminn okkar út í allan dag vegna veðurs. En það hefur nú jafnað sig að mestu þetta veður.

Jæja, heyri vonandi í ykkur fljótlega, knús og kossar héðan, Edda og co.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home