Sex and the City
Verð að segja ykkur frá því hverjum ég mætti um daginn. Ég var að labba upp í skóla í San Francisco, lít upp í gegnum sólgleraugun mín og hver haldið þið að labbi ekki á móti mér, lögfræðingurinn sem lék í Sex and the City. Sá sem Charlotte giftist, Harry. Ferlega fyndið að hitta svona manneskju sem maður hefur oft séð í sjónvarpi, mig langaði til að heilsa honum eins og gömlum vini :) Svo fór ég að hugsa, "á maður ekki að hoppa á fræga fólkið eins og geðsjúklingur og biðja um eiginhandaráritun???", eftir ca. einnar sekúndu umhugsun þá ákvað ég að það væri ekki alveg minn stíll og lét mér nægja að labba rólega fram hjá honum :)
Edda.
Edda.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home