Íslandsferð
Jæja, nú er komið að því að við erum á leiðinni til Íslands. Við erum allar mjög spenntar. Því miður kemst Gummi ekki vegna vinnunnar, hann kemur vonandi með næst :) En áður en við komum til Íslands þá er langt ferðalag framundan. Við byrjum á því að fara til Boston, förum á morgun og verðum komin eldsnemma á fimmtudaginn. Fljúgum svo frá Boston þá um kvöldið. Endum svo á Íslandi á föstudagsmorgninum. Þetta verður nú örugglega e-ð skrautlegt þar sem ég þarf að vera með töskurnar í eftirdragi í Boston, gaman.
En eins og ég sagði þá erum við allar mjög spenntar og hlökkum mikið til að hitta ykkur öll.
Knús og kossar, Edda og co.
En eins og ég sagði þá erum við allar mjög spenntar og hlökkum mikið til að hitta ykkur öll.
Knús og kossar, Edda og co.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home