Sunday, May 07, 2006

LA með meiru

Hrund systir mín var var hérna hjá okkur í tvær vikur um páskana. Ofsa gaman að hafa hana hér hjá okkur. Við slöppuðum mikið af og dekruðum við okkur. Elísabet kallaði hana allan tímann Frund frænku, ótrúlega fyndið. Veðrið var ekkert allt of gott á meðan hún var hjá okkur en við náðum samt að gera ýmislegt. Við fórum m.a. upp til San Fran. alltaf gaman þar, fórum í smá búðarrölt og löbbuðum um þessa frábæru borg.

Nokkrum dögum seinna keyrðum við niður til LA og eyddum nokkrum dögum þar. Við hittum m.a. gamlan vin hennar Hrundar, æskuvin reyndar, hann Egil. Hann er Íslendingur og er búinn að búa í LA í 18 ár held ég. Hann er upptökustjóri á einum af mínum uppáhalds þáttum, CSI Miami, http://www.cbs.com/primetime/csi_miami/ Haldið þið að hann hafi ekki boðið okkur á settið á þættinum, ég ætlaði varla að trúa því. Ég verð nú samt að segja að ég er ekki mikið grúppía, þ.e. ég er ekki (held ég) þessi týpíski aðdáandi sem geggjast þegar hann sér fræga fólkið.

En aftur í söguna, við fórum sem sagt á settið á CSI Miami. Hann rölti með okkur um allt og sýndi okkur hvernig settið leit út. Það var mjög fyndið að standa í miðri CSI stöðinni, standa inni í lyftunni. Síðan bauð Egill mér að liggja á líkborðinu eða fara inn í líkhólfin. Ég hélt nú ekki. Við hittum nú líka aðeins fræga fólkið, m.a. herra Horatio Caine, Eric Delko og eina af leikkonunum. Eins og það var nú gaman að hitta þetta fólk þá fannst mér eiginlega mun skemmtilegra að labba um með Agli og fá að sjá settið og hvernig þeir setja upp lýsingarnar og allt svol. Ég hefði aldrei trúað því hvernig hlutirnir ganga fyrir sig þarna. A.m.k. 95% af þáttunum eru teknir í studíói í LA en ekki í Miami, þetta vissi ég t.d. ekki. Svo vegna þess að ég er í ljósmyndanáminu mínu og fannst þetta svona líka rosalega skemmtilegt (hefði getað eytt allri vikunni þarna) þá fékk ég að fara inn á settið eins og leikstjórarnir og horfa í myndavélina og sjá hvað þeir voru að taka. Við vorum meira að segja viðstödd eina tökuna. Þetta var alveg ótrúlega gaman og fróðlegt. Það voru allir mjög uppveðraðir yfir fallegu rauðhærðu stelpunum mínum og þá sérstaklega Horatio Caine, eða David Caruso eins og hann heitir víst, en hann er einmitt rauðhærður.

Seinna sama dag fórum við heim til Egils og hittum fjölskyldu hans, konuna hans og börnin hans þrjú. Það vildi svo skemmtilega til að krakkarnir hans eru á aldur við stelpurnar mínar, tveir strákar sitthvoru megin við Ýr í aldri og stelpa sem er nokkrum mán. eldri en Elísabet. Það var ofsalega gaman að hitta fjölskyldu hans, ofsalega indæl og skemmtileg. Ýr og strákunum kom svo rosalega vel saman að þau vildu varla segja bless, svo voru Elísabet og Zoe (litla stelpan á heimilinu) svo rosalega miklar prinsessur að þær voru stöðugt að skipta um prinsessukjóla og kórónur :-) Það var rosalega gaman að kynnast þessari fjölskyldu og gaman að geta eytt frábæru kvöldi með þeim.

Að öðru leyti fórum við í sight-seeing í LA, á ströndina og þess háttar. Fengum frábært veður þar og gátum notið sólarinnar. Ég sá nýja og mjög skemmtilega hlið á LA fyrir utan kannski umferðina. Ætli við höfum ekki eytt ca. 40% af tímanum í umferðinni, hún er alveg fáránlega mikil þarna.

En nú Hrund komin aftur heim til sín og við hlökkum mikið til að fá hana í heimsókn til okkar aftur, en þá á meiri sólartíma ;-)

Kv. Edda.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home